157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

almenn hegningarlög.

313. mál
[16:08]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. dómsmálaráðherra fyrir svar við mínu andsvari og get algerlega tekið undir það að þetta er eitthvað sem við þurfum fyrir samfélagið allt. Við viljum ekki að hér gangi um stórhættulegir einstaklingar þrátt fyrir að hafa lokið einhverjum dómi.

Það sem mig langar að spyrja um er að hér er talað um fimm ára, hvað eigum við að kalla þetta, hámarksdóm í senn inn í þetta úrræði. Segjum bara að eftir tvö ár verði töluverð betrun, er eitthvað hægt að skoða það? Eru menn metnir á tímabilinu? Síðan þegar menn eru settir í þessa Miðstöð um öryggisráðstafanir þá er það vegna þess að þeir eru stórhættulegir en einhvern tímann losna þeir út og kannski eru þeir orðnir algerlega meinlausir, mér finnst það reyndar ólíklegt, en er eitthvert framhald í þessu? Væri hægt að vera með rafrænt eftirlit með einstaklingum sem næsta skref í þessum málum þannig að þeir sem voru álitnir hættulegir fyrir samfélagið hljóti áframhaldandi vistun? Er eitthvað eitt skref í viðbót að þeir fari þá ekki bara út þrátt fyrir að hafa afplánað þennan tíma sinn? Er einhver viðbótarpæling til að geta fylgst með þessum einstaklingum sem geta áfram verið ákaflega hættulegir fyrir samfélagið?