útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.
Frú forseti. Aftur aðeins með alþjóðlegu verndina og það sem þingmaðurinn nefnir. Ég held að það þurfi að horfa til þess í dag að um 60% allra umsækjenda eru einstaklingar frá Úkraínu. Þegar við horfum til þess hvernig landslagið er í dag þá er það a.m.k. afstaða ríkisstjórnarinnar að við ætlum sannarlega að halda áfram að taka á móti því fólki og ég veit að hv. þingmaður er mér mjög sammála um þetta. (Gripið fram í.)
Varðandi hina spurninguna þá held ég að það sé í reynd ekki þannig að um sé að ræða forgangsreglu heldur ákveðnar skuldbindingar gagnvart því fólki sem hingað kemur til lands og í samhengi við það hvernig stofnunin hefur verið mönnuð og þær kríteríur sem eru á afköstum hafi þetta verkast með þeim hætti. Þannig að það er ekki beinlínis svo að um forgangsreglu sé að ræða þó að hún birtist þannig í framkvæmd. Ég held að það sé ekki alveg einfalt að skoða þetta en það mun ég gera með opnum huga.