útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.
Frú forseti. Hv. þingmaður spyr hvernig þessar breytingar eru til komnar og vísar í það að það var starfandi hópur sem rýndi kerfið í heild sinni og benti þá á þetta með námsmannaleyfin og þá í samhengi við það að framkvæmd okkar er önnur en annars staðar á Norðurlöndunum. Þetta hafði ég líka heyrt innan úr Útlendingastofnun og ég hafði heyrt þetta innan úr Háskóla Íslands og eins og ég nefndi í framsöguræðu minni þá fundaði ég sérstaklega með rektor Háskóla Íslands þar sem ég greindi frá þríþættum breytingum og af hvaða ástæðum þær væru gerðar án þess að nokkrar athugasemdir heyrðust. Síðan þarf nýr dómsmálaráðherra bara að venjast því að það er talað mjög harkalega í útlendingamálum og stór orð notuð. Ég byggði þetta á gögnum, ég byggði þetta á samtölum, ég byggði þetta á greiningum og stend með þessum tillögum. Ég held líka að þegar við horfum á þessar breytingar sem voru gerðar 2023 og allir flokkar studdu, að það kom síðan í ljós að góður hugur er ekki alltaf nóg.