útlendingar og atvinnuréttindi útlendinga.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína framsögu. Ég tel að hér séu í raun mörg skref stigin til bóta í málum sem síðasta ríkisstjórn einhverra hluta vegna velti á undan sér og sinnti ekki eða tók ekki á. Því ber í sjálfu sér að fagna.
Mig langar aðeins að spyrja hæstv. ráðherra út í það sem kemur hér fram í greinargerðinni þar sem verið er að stytta dvalarleyfi eftir útskrift úr þremur árum niður í 18 mánuði. Ég veit í sjálfu sér ekki hvers vegna 18 mánuðir eru niðurstaðan, einhver rök hljóta að hníga til þess. Mig langar að spyrja hver þau rök voru og hvort komið hafi til greina að hafa þennan tíma jafnvel styttri. En ég fagna því að hæstv. ráðherra skuli hér taka á málum sem síðasta ríkisstjórn einhverra hluta vegna velti á undan sér.