157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

opinberir háskólar.

309. mál
[17:26]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008. Frumvarpið fjallar annars vegar um heimild til stofnunar háskólasamstæðu og hins vegar um ákvæði til bráðabirgða vegna fyrirhugaðrar sameiningar Hólaskóla, sem sagt Háskólans á Hólum, og Háskóla Íslands undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands.

Það má segja að frumvarpið feli í sér eina stærstu breytingu sem hefur orðið á skipan háskólamála í landinu frá því að háskólum var fjölgað úr einum upp í níu á síðustu tveimur áratugum síðustu aldar. Háskóli Íslands hafði allt frá stofnun hans 1911 verið eini háskólinn en eftir að fleiri háskólar voru settir á laggirnar urðu þeir mest níu. Síðan sameinast Háskólinn í Reykjavík og Tækniskóli Íslands annars vegar og Kennaraháskóli Íslands og Háskóli Íslands hins vegar og eftir það hafa þeir verið sjö talsins. Það er mikilvægt að taka fram í upphafi að þetta mál á rætur sínar að rekja til frumkvæðis tveggja háskóla, Háskóla Íslands og Háskólans á Hólum, sem ákváðu fyrir tveimur árum að hefja viðræður um samstarf eða sameiningu. Í viðræðunum var fyrst og fremst horft til þeirra tækifæra sem þetta gæti fært báðum skólum en að sjálfsögðu var einnig litið til hindrana sem gætu orðið á veginum. Niðurstaða skólanna varð sú að best væri fyrir báða skólana að sameinast á grunni háskólasamstæðu sem á sér ekki hliðstæðu hér á landi en er þekkt víða erlendis í mismunandi myndum. Háskólarnir sjálfir teiknuðu háskólasamstæðuna eins og þeir vildu hafa hana og sjálfstæði þeirra í því samtali var virt í hvívetna af hálfu ráðuneytis háskólamála.

Virðulegur forseti. Í frumvarpinu er opinberum háskólum sem hlotið hafa viðurkenningu, samkvæmt lögum um háskóla, veitt heimild til að stofna háskólasamstæðu og heimildin nær til tveggja eða fleiri háskóla. Frumvarpið felur jafnframt í sér heimild fyrir aðra háskóla til að sameinast opinberum háskólum undir merkjum háskólasamstæðu. Á því er byggt að þessir háskólar, á grundvelli heimildarinnar, sameinist undir merkjum háskólasamstæðu og lúti sameiginlegri yfirstjórn. Sá háskóli sem leiði sé nefndur samstæðuháskóli og rektor og háskólaráð hans fari með stjórn samstæðunnar og þeirrar aðildar háskóla sem undir hana heyra.

Í frumvarpinu er kveðið nánar á um aðgreiningu samstæðuháskóla og aðildarháskóla. Á þessum grunni munu Háskólinn á Hólum og Háskóli Íslands sameinast undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands. Myndun háskólasamstæðunnar með þessum hætti felur ekki í sér grundvallarbreytingu á þeirri starfsemi sem fyrir er í Háskóla Íslands. Þá felur yfirstjórnarhlutverk rektors og háskólaráðs gagnvart aðildarháskólum í sér sömu stjórnunarheimildir og gildir óbreytt um samstæðuháskóla. Á móti mun skipulag háskólasamstæðu fela í sér að aðildarháskólar njóti mikilvægs sjálfstæðis undir merkjum samstæðuháskólans. Að ýmsu leyti verður staða þeirra sambærileg fræðasviðum innan samstæðuháskólans sem eru mjög sjálfstæðar einingar innan skólans og gegna þar lykilhlutverki.

Virðulegur forseti. Aðildarháskólarnir hafa þó ákveðna sérstöðu gagnvart fræðasviðum sem eykur á sjálfstæði þeirra og birtist a.m.k. á þrjá vegu. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir að nafn aðildarháskóla feli í sér vísun í nafn samstæðuháskóla auk þess sem nafnið feli líka í sér vísun til staðsetningar eða hlutverks aðildarháskólans. Í öðru lagi mun aðildarháskólinn hafa sérstaka stjórn sem fjallar um fagleg málefni skólans líkt og stjórnir innan fræðasviðs HÍ hafa nú. Í þriðja lagi er það síðan samstarfsráðið sem hefur sérstöðu miðað við fræðasvið HÍ og stendur raunar ögn hærra í skipulagi HÍ en fræðasviðin. Samstarfsráðinu er ætlað að fara með mikilvægar ákvarðanir sem varða m.a. samstarf um nám, kennslu og rannsóknir auk ákvarðana sem varða þróun á starfsemi aðildarháskólanna innan samstæðunnar. Jafnframt er gert ráð fyrir því að samstarfsráðið marki stefnu og sé ráðgefandi fyrir rektor og háskólaráð um málefni aðildarháskóla. Þá skiptir miklu máli fyrir aðildarháskóla að ákvarðanir sem varða grundvallarbreytingar á starfsemi og námsskipan þeirra verði ekki teknar án þess að þær hafi hlotið einróma samþykki í samstarfsráði. Háskólinn á Hólum verður þannig ekki lagður niður, svo dæmi sé tekið, nema á grundvelli einróma samþykkis í ráðinu. Það er því ákveðið neitunarvald sem er nauðsynlegur öryggisventill í viðkvæmu máli eins og sameining háskóla er, sérstaklega þegar í hlut á háskóli á landsbyggðinni.

Virðulegi forseti. Eftir samráðið í samráðsgáttinni komu 19 umsagnir og var ákveðið að gera þrjár veigamiklar breytingar frá upphaflegum drögum og þær eru þessar helstar: Í fyrsta lagi var horfið frá því að leggja til breytingu á 1. gr. laganna með því að taka út nöfn háskólanna en halda því óbreyttu að nöfn þeirra skyldu jafnframt birt í auglýsingu sem ráðherrar gæfu út, þ.e. nöfn allra háskóla sem starfa hér á landi.

Í öðru lagi, í samræmi við samning sem Háskóli Íslands og Háskólinn á Hólum ásamt ráðherra voru búnir að undirrita, var heitið flaggskipsháskóli notað um þann skóla sem leiðir háskólasamstæðuna. Þetta heiti þótti mörgum heldur bólgið og stórt og bent var á að það væri verið að gera Háskóla Íslands heldur hærra undir höfði en öðrum háskólum í landinu. Því var ákveðið að breyta heitinu í samstæðuháskóli. Orðið samstæðuháskóli fellur líka vel að orðinu háskólasamstaða sem og stöðu og hlutverki þess háskóla sem leiðir og hefur með höndum yfirstjórn samstæðunnar og aðildarháskóla.

Í þriðja lagi var í upphaflegu drögunum lagt til að binda heimild til stofnunar háskólasamstæðu við háskóla með fleiri nemendur en 5.000. Það var m.a. með hliðsjón af því að í lögum um opinbera háskóla eru fleiri fulltrúar í háskólaráði, tíu talsins auk rektors, í skólum með yfir 5.000 nemendur en í skólum með færri nemendum eru sex talsins auk rektors. Þetta þótti í einhverjum umsóknum vera sniðið að þörfum HÍ og útiloka þannig aðra háskóla frá því að stofna slíkar háskólasamstæður. Því var fallist á að falla frá þessu, að lögfesta þetta skilyrði, og umsagnirnar í rauninni málefnalegar og skiljanlegar. Á móti þarf samt sem áður að gera samning milli viðkomandi háskóla og ráðherra um stofnun háskólasamstæðu. Þar getur ráðherra vissulega haft uppi málefnaleg sjónarmið við ákvörðun um það hvort hann skrifi undir slíkt samkomulag eða ekki.

Auk heimildarinnar til stofnunar háskólasamstæðu fjallar frumvarpið um sameiningu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands undir merkjum háskólasamstæðu Háskóla Íslands. Ákvæðin fjalla síðan um yfirfærslu eigna, skuldbindinga, fjárheimilda og viðurkenningu fræðasviða við sameininguna. Jafnframt er fjallað um niðurlagningu embættis rektors og háskólaráðs Háskólans á Hólum og kveðið á um að fráfarandi rektor verði forseti Háskóla Íslands á Hólum í nánar tilgreindan tíma. Þá er tekið á flutningi starfa sem ráðið er í ótímabundið við sameininguna, réttarstöðu nemenda og breytingu á tilnefningu fulltrúa ráðherra í háskólaráð Háskóla Íslands. Verði þetta frumvarp að lögum er á því byggt að breytingarlögin taki gildi þann 1. júlí árið 2026.

Virðulegur forseti. Ég hef hér farið yfir meginefni frumvarpsins. Ég hef sannfæringu fyrir því að þær breytingar sem eru lagðar til og sú viðbót sem þetta skapar inn í háskólaumhverfið feli í sér opin og ný tækifæri til að styðja og efla starfsemi háskólanna í landinu. Með þessu fá þeir nýtt tæki í hendurnar til að þróa starfsemi sína til framtíðar með markvissum hætti og fyrst og fremst auka gæði og fjölbreytni til náms. Við skulum hins vegar svona að lokum hafa það algerlega í huga að það er undir háskólunum sjálfum komið hvernig þeir nýta þetta tækifæri og ég legg sérstaka áherslu á að með frumvarpinu er í engu verið að gera tilraun til að höggva í sjálfstæði þeirra eða sjálfsákvörðunarrétt. Þvert á móti hefur öll þessi vinna sem farið hefur fram á milli Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands verið í einu og öllu á þeirra eigin forsendum. Nú fá hins vegar aðrir háskólar tækifæri til að máta sig inn í þetta skipulag eða annað, allt eftir því hvernig þeir sjá fyrir sér möguleikana sem þetta nýja skipulag háskólamála felur í sér.

Virðulegi forseti. Ég vænti málefnalegrar og upplýsandi umræðu um þetta mikilvæga mál og legg til í framhaldinu að þessu verði vísað til meðferðar í hv. allsherjar- og menntamálanefnd.