157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

opinberir háskólar.

309. mál
[17:39]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar ágætu spurningar. Það er einmitt nákvæmlega styrkurinn sem Háskólinn á Hólum hefur, þ.e. að vera leiðandi í námi og kennslu, annars vegar í reiðmennsku og hins vegar í lagareldi, og ég býst við því að það séu styrkleikar sem Háskóli Íslands er ekki síst að horfa á.

Ég endurtek það sem ég sagði í upphafi að frumkvæðið að þessari skoðun sem leiðir nú til þessarar tillögu kemur frá skólunum sjálfum. Þeir mátu það einfaldlega þannig að í flóknu samkeppnisumhverfi, ekki síst við útlönd, skapast þarna fjöldamörg tækifæri til sóknar til að efla gæði náms, fjölbreytni í námi, samstarf í verkefnum við erlenda aðila o.s.frv. Ég get því fullvissað hv. þingmann um það að hugur þeirra sem að þessu stóðu og okkar í ráðuneytinu er ekkert annað en að styrkja enn og efla þessi sóknarfæri. Íslenski hesturinn er okkur auðvitað hugleikinn og skiptir miklu máli fyrir menningarlíf Íslendinga og síðan er það lagareldið sem á eftir að leika stórt hlutverk og lykilhlutverk í aukinni verðmætasköpun og próteinframleiðslu Íslendinga og heimsins alls.

Það eru áform um að byggja upp og bæta aðstöðu til hestanáms á Hólum, í nálægð við þann stað sem nú er. Með hvaða hætti er ekki alveg búið að ákveða og jafnframt að ráðast í uppbyggingu á fullkominni aðstöðu fyrir lagareldi á Sauðárkróki.