opinberir háskólar.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir prýðisgott svar. Mig langar í seinna andsvari að vera á svipuðum nótum og hv. þm. Þórarinn Ingi Pétursson. Við vitum náttúrlega öll að Hólar eru sögufrægur staður og við þurfum að halda í menningarlegt gildi staðarins, þannig að getur hæstv. ráðherra eitthvað upplýst á þessari stundu um hvaða áætlanir eru um að viðhalda menningarlegu gildi staðarins?
Síðan langar mig aðeins að koma inn á áformin um að byggja upp starfsemi skólans á Sauðárkróki með byggingu lagareldishúss fyrir nemendur í fiskeldis- og fiskeldislíffræði, aðstöðu fyrir kennslu o.s.frv. Hver er staðan á því? Og getur hæstv. ráðherra upplýst um tímarammann, hvort hann liggi fyrir á þessari stundu.