157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

opinberir háskólar.

309. mál
[17:52]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu hér á þessu máli og tek undir það sem hann bendir á, að það var tekið tillit til ýmissa athugasemda og ábendinga sem komu fram í samráðsgátt. Það er mjög mikilvægt og gott og ég held að það hafi verið málinu til mikilla bóta vegna þess að ég fann það alveg af mínum samtölum við fagfólk og hagaðila að þeim leist ekki á að hafa þarna flaggskipsnafnið og eins líka þessar fjöldatakmarkanir sem voru 5.000, að það sé búið að taka tillit til flestra þeirra ábendinga sem ég veit m.a. að hafa komið fram að norðan, frá Háskólanum á Akureyri. Það voru einmitt ansi skýrar umsagnir sem voru mótfallnar málinu þegar þær voru lagðar fram í samráðsgáttinni en málið hefur tekið miklum breytingum og það er mjög jákvætt. En það er líka mikilvægt á Íslandi, þó að við séum fámenn er landið víðfeðmt og það er mikilvægt að við höfum öflugan háskóla á landsbyggðinni og ég veit að hæstv. ráðherra er mér sammála, þar sem við komum úr sama kjördæmi, um hversu mikilvægt er að efla m.a. Háskólann á Akureyri.

Mig langar að spyrja í því ljósi hvernig ráðherra hyggst tryggja það að aðildarháskólar á landsbyggðinni verði sjálfstætt þekkingarsamfélag, þeir verði ekki smátt og smátt bara jaðarsett rekstrareining innan stóru samstæðu háskólanna, og hvernig hann tryggi það að þessi skipulagsbreyting leiði til uppbyggingar þekkingar utan Reykjavíkur en ekki aukinnar miðstýringar. Við erum oft hrædd við það og við erum hrædd við breytingar, vissulega, og þá er mjög mikilvægt að það séu skýr markmið og skýr sýn fram á við um hvernig við ætlum að gera þetta. Ég er með frekari spurningar en ég læt þetta bara nægja núna í fyrra andsvari og leyfi ráðherra að svara. En það væri mjög áhugavert að fá að heyra skýr rök fyrir þessu því það eru áhyggjur af því.