157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

opinberir háskólar.

309. mál
[17:54]
Horfa

menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra (Logi Einarsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er rétt að við gerðum talsverðar breytingar eftir að málið kom úr samráðsgátt og það var vegna þess að það voru færð góð og málefnaleg rök fyrir athugasemdum, og hlutir sem voru ekki hugsaðir nákvæmlega eins og hægt var að túlka þá og þá var ágætt að slá af allan vafa. Það er náttúrlega mjög stór og sterkur varnagli í þessu samstæðuráði sem gerir í rauninni skólanum fyrir norðan kleift að standa gegn öllum grundvallarbreytingum sem ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður sé að vísa til. Ég þekki auðvitað þessar aðstæður, komandi utan af landi, að við getum oft verið hrædd við breytingar sem á að gera. Ég held að það sé að einhverju leyti hollt að hafa varann á sér.

Hins vegar held ég að hræðsla í því umhverfi sem við erum stödd í núna megi ekki ráða för heldur frekar að við áttum okkur á því að í 380.000 manna landi með sjö háskólum erum við mögulega líka að dreifa kröftunum of mikið. Við eigum fyrst og fremst að horfa á að efla sérstöðu hvers háskóla fyrir sig og vera í samkeppni við háskóla erlendis frekar en að vera að bítast innbyrðis. Ég tek hins vegar undir það að það er mikilvægt að það gerist þá á þann hátt að námsframboð á landsbyggðinni, í skólum þar, verði tryggt. Það er vilji bæði heimamanna á Hólum sem hafa barist fyrir þessu og eins Háskóla Íslands að það séu sóknarfæri í að vera með námið einmitt þar norður frá.