opinberir háskólar.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það eru einmitt líka áhyggjur heimamanna á Hólum varðandi þessar sameiningar. Það er auðvitað þannig að fólk er hrætt við breytingar, eins og komið hefur fram, og þá er mikilvægt þegar er verið að sameina og fara í einhverjar breytingar að þær séu hugsaðar til að efla námsframboð, efla skólana og efla þá þjónustu sem er í boði. Það þarf að tryggja það.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og í rauninni snýr þetta líka að jafnræði. Hann kemur inn á það að hér séu sjö háskólar og mikilvægt sé að þeir fái að njóta sinnar sérstöðu og þá kemur að því að þeir lúti sömu reglum þegar kemur að alls konar innleiðingum á hinu og þessu mati á námi, mati á kennslu o.fl., og það er ekki alveg nægilegt samræmi á milli Háskóla Íslands og annarra háskóla.
Ég vil spyrja hæstv. ráðherra, vegna þess að það kemur fram í greinargerðinni að það sé einmitt nokkur aðstöðumunur sem hefur komið í ljós við hugsanlega sameiningu og í frummatinu á kostnaðinum eru (Forseti hringir.) áætlaðar 50–100 milljónir, fjármagn sem þarf til lengri tíma: Hvar liggja nákvæmir útreikningar sem styðja þessa upphæð og hvernig verður tryggt að þetta viðbótarframlag skerði ekki framlag (Forseti hringir.) til annarra háskóla? Það er mikilvægt að það haldist, þannig að ég spyr: Hvers vegna er þessi leið farin í stað þess að jafna kjör allra háskóla í landinu?