opinberir háskólar.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir ágæta ræðu. Ég vil halda því til haga, sem kannski kom ekki fram hjá mér áðan, að þessi kostnaður, sem er m.a. vegna þess að það þarf að jafna launakjör á milli starfsmanna þessara tveggja eininga, er greiddur úr sérlið sem er hugsaður í svona verkefni og verður greiddur svo lengi sem þarf. Ekkert ólíkt því að við höfum veitt einhver hundruð millj. kr. til þessarar sameiningar og sameiningarviðræðna milli Háskólans á Akureyri og Háskólans á Bifröst eins og hv. þingmenn þekkja.
En varðandi aðstöðumuninn og að það sé verið að gera upp á milli skóla þá var á síðasta kjörtímabili tekið upp reiknilíkan sem liggur til grundvallar úthlutun á fjármunum. Það lýtur auðvitað bara hlutlægum mælikvörðum og sínu lögmáli. Vissulega er hægt að breyta því en þar er greitt eftir kennsluþáttum, það er umbunað fyrir rannsóknarvirkni, fyrir árangur og náðar gráður o.s.frv. þannig að þar er alveg jafnræði á milli. Ráðherra hefur ekki neinn möguleika á og á ekki að geta farið inn í skólann og haft einhver áhrif á það beinlínis með hvaða hætti launakjör eru. Þau ráðast bara af rekstri hvers skóla fyrir sig. En í því ljósi má nefna að það væri mjög skynsamlegt að sameina einhverja af þessari stoðþjónustu sem er í skólunum — hver skóli er að reka sína stoðþjónustu og það næst mikil samlegð — og geta veitt því þá í nemendur og notað það í kennslu. Og ég spyr hv. þingmann hvort hún sé ekki sammála mér um að það væri þess virði að skoða samvinnu milli ólíkra skóla varðandi stoðþjónustu, óháð því hvað þeir ákveða svo í samstarfi eða sameiningum eða öðru.