opinberir háskólar.
Virðulegur forseti. Það er horft til þess að á einhverjum árafjölda jafni þetta sig út og það náist hagræði úr þessu. En það er nú þannig að ráðuneyti háskólamála veitir ýmiss konar stuðning fram hjá líkaninu þegar þannig ber undir.
Ég nefndi áðan sameiningarviðræður. Ég get nefnt þegar teknar eru upp nýjar námsgreinar og annað, þannig að ég hef ekki miklar áhyggjur af þessu. En mig langar að halda áfram með stoðþjónustuna. Við erum með sjö háskóla í landinu, þar af fjóra opinbera. Gæti ekki verið meiri samlegð að þeir ynnu saman t.d. að einhverju leyti, að fjármálum, kennsluþróun, varðandi gervigreind, alþjóðlegt rannsóknarumhverfi, að hver skóli hefði ekki sína siðanefnd o.s.frv., að skólarnir litu kannski hver til annars í samvinnu um þessa þætti og gætu þá nýtt peningana betur (Forseti hringir.) í kennslu og rannsóknir?