157. löggjafarþing — 55. fundur,  15. jan. 2026.

opinberir háskólar.

309. mál
[18:27]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F) (andsvar):

Herra forseti. Maður þarf að lækka púltið svolítið. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir ansi góðar spurningar. Ég tek alveg undir að auðvitað eru það vangaveltur þegar við erum með sjö háskóla, fjóra opinbera og þrjá einkarekna, um forsendurnar fyrir rekstrinum og hugsanlegu samstarfi og fjármögnun í kringum það. Ég hef alveg velt þessu fyrir mér sem hv. þingmaður kom inn á varðandi þennan eindregna vilja til samstarfs, hvort þetta sé í rauninni komið af innri hvötum og fólkið sjái tækifæri vegna samstarfsins eða hvort það sé í rauninni vegna fjársveltis og þau sjái sig nauðbeygð til þess að fara í samstarf. Ég trúi því að reiknilíkanið sem kom fram á síðasta kjörtímabili hafi einmitt verið hugsað til að jafna stöðu háskóla. Það getur vel verið að það þurfi lengri tíma fyrir háskólana til þess að jafna sig eftir að því var breytt. Ég þekki það ekki nægilega vel til að svara því hér. Það má vel vera. Þegar kemur að samráðsgáttinni og stuttum tíma þá fagna ég því þó að þetta mál hafi farið fyrir samráðsgátt. Það á ekki við um öll mál ríkisstjórnarinnar að þau fari í samráðsgátt, ekki einu sinni stórmál eins og samgönguáætlun.

Þannig að þetta mál fór þó þangað, fékk kannski stuttan tíma, en ég heyri nú ekki betur en, alla vega miðað við þá sem ég hef rætt við í tengslum við þetta mál, að þeir séu nú rólegri eftir að breytingarnar voru gerðar. Og eins og hv. þingmaður kom inn á hérna áðan í sínu máli gefst tækifæri núna þegar málinu verður vísað til allsherjar- og menntamálanefndar að það verði sett í umsögn. Þá bind ég vonir við að þessir háskólar og allir aðilar sem hafa áhuga á þessu máli sendi inn umsögn og komi fyrir nefndina og þá getur vel verið að gerðar verði einhverjar breytingar ef við teljum þörf á að koma hugsanlega í veg fyrir að háskólar sjái sig tilneydda til að fara í einhvers konar samvinnu eða samsteypu með öðrum háskólum vegna fjársveltis. Það verður (Forseti hringir.) áhugavert að sjá það og það mun líklega koma fram í vinnu nefndarinnar hvort það sé ástæðan eða ekki.