opinberir háskólar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir hans seinna andsvar. Þetta er mjög áhugaverð vangavelta hjá hv. þingmanni varðandi Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri. Þetta hefur farið svona fram og til baka, m.a. varðandi garðyrkju og fleira, hvernig við eigum að gera þetta, með hvaða hætti, og þegar kemur að rannsóknum og greiningum er mjög mikilvægt líka að fá fjármuni inn í það. Það sem ég heyri af mínum samtölum er að það virðist vera að það vanti fjármuni til þess að geta sinnt rannsóknum almennilega, fyrir aðra háskóla. Háskóli Íslands býr vel að vissum sjóðum sem hann hefur og þeir hafa það umfram aðra háskóla. Hann er með tryggða fjármuni inn í rannsóknir í gegnum happdrætti og fleira og grunnsjóði sem voru stofnaðir fyrir einhverjum árum eða áratugum sem hann nýtur góðs af. Þannig að þetta er eitthvað sem þyrfti að horfa til, alveg sama hvað háskólinn heitir, ef við ætlum að efla rannsóknir hér á landi, sem er mjög mikilvægt að við gerum. Við erum með fagfólk víða, öfluga einstaklinga sem vilja sinna þessu og þá þurfum við aðeins að horfa á hvernig við getum mögulega styrkt þetta. Ég veit að þetta kom m.a. fram í umræðum þegar Háskólinn á Bifröst og Háskólinn á Akureyri voru eitthvað að skoða og voru með einhverjar þreifingar varðandi hvort það ætti að fara í sameiningar á milli þessara skóla. Það voru þarfagreiningar og verið var að vega og meta kosti og galla og þá var einmitt ein af ástæðunum fyrir mögulegri sameiningu rannsóknir. Því að það gæti hugsanlega leitt til þess að það gætu komið fjármunir þar inn sem myndu efla starfið til mikilla muna. Þannig að þetta er einmitt m.a. ein ástæðan fyrir því að háskólar sjá sig hugsanlega tilneydda eða sjá jafnvel tækifæri í því að sameinast vegna þess að þeir gætu eflt starfið. (Forseti hringir.) Þannig að ég held að fyrst og fremst þurfum við að skoða það hvaða fjármuni við erum að setja í rannsóknir almennt til háskóla á Íslandi.