opinberir háskólar.
Virðulegur forseti. Ég get eiginlega ekki annað en komið hingað upp og tjáð mig örlítið í þessu máli sem ég þekki nú ágætlega og þekki söguna ágætlega. Ég vil bara byrja á því, fyrst hæstv. ráðherra er hér í salnum, að óska honum til hamingju með þetta frumvarp og þakka fyrir það vegna þess að ég tel að hér sé um að ræða mjög gott mál. Þessi fæðing varðandi þetta samstarf, þessa háskólasamstæðu Háskólans á Hólum og Háskóla Íslands, er búin að vera mjög lengi í umræðunni og á því hafa verið alls konar beygjur og sveigjur. Þetta er niðurstaða sem ég held að sé skynsamleg og muni nýtast skólanum, sérstaklega Háskólanum á Hólum, vel til lengri tíma litið. Ég held að þetta muni klárlega styrkja svæðið og ég held að þetta verði nemendum til gríðarlegra hagsbóta þar sem við erum að sjá að það verður mikil aukning í stoðþjónustu þessa skóla, sem hefur vantað og skólinn hefur verið að kalla eftir.
Aðeins varðandi umræðuna sem var hér áðan og vangaveltur hv. þingmanna um það hvort þetta væri einhvers konar þvinguð sameining þá er alla vega sú saga sem ég þekki af málinu, sem er nú nokkur, og hafandi verið í miklum samskiptum við rektor Háskólans á Hólum undanfarin misseri út af þessu og sveitarstjórnarfólk í Skagafirði m.a. — þá held ég að það sé alls ekki þannig. Það er mikill vilji og bæði er það með rektorinn og skólafólkið á Hólum að það sér mikil tækifæri í þessari breytingu, sér mikil tækifæri varðandi vöxt og uppbyggingu Háskólans á Hólum, það sér meiri vöxt og meiri tækifæri í að fara þessa leið heldur en að halda einingunni óbreyttri áfram, þannig að hér er alla vega ekki að mínu viti, virðulegur forseti, um einhvers konar þvingaða sameiningu að ræða heldur er þetta gert algerlega byggt á forsendum skólans um það að ná fram meiri, faglegri og betri kennslu og tækifærum til framtíðar.
Það er alveg ljóst að það eru miklar áskoranir, svo við ræðum nú aðeins bara Hóla og Hólastað, sem stjórnvöld þurfa að nálgast samhliða þessu verkefni og mörg mál sem eru óleyst eins og varðandi staðarhald og fleira sem við höfum ekki náð að klára á síðustu árum og jafnvel áratugum. Ég bara beini því, af því ég er nú með hæstv. ráðherra í salnum, til ráðherra að beita sér fyrir því samhliða þessu verkefni að reyna að klára þetta þannig að það komist á í eitt skipti fyrir öll í raun og veru einhvers konar sátt og niðurstaða um það hvernig málum á Hólum skuli vera háttað varðandi þá staðarhaldið. Þetta er ekki þéttbýliskjarni. Sveitarfélagið hefur enga aðkomu þarna, nema bara hvað varðar snjómokstur, eða neitt. Hólastaður sjálfur sér um sig sem er náttúrlega bara barn síns tíma. Síðan ertu með Hóladómkirkju sem er annað mál sem þarna þvælist fyrir og þarna þarf einhvern veginn að leysa þetta þannig að menn geti farið að byggja upp þennan merka og glæsilega stað sem Hólar svo sannarlega eru. Til þess að það sé hægt að klára það þurfa þessir þættir að vera að baki.
En aftur að þessari háskólasamstæðu. Það er líka ýmislegt sem við þurfum að tryggja og ég efast ekkert um að hugur fylgi máli hjá hæstv. ráðherra í því og ég bara brýni hann hér í því að ég efast ekki um að það séu aðrir háskólar sem séu að horfa til þess hvernig þetta verkefni mun ganga hjá okkur. Ef okkur gengur vel þá eru að sjálfsögðu meiri líkur til þess að við munum fá fleiri slíkar háskólasamstæður í framtíðinni.
Það er algjört lykilatriði, virðulegur forseti, að við náum að byggja Hólaskóla almennilega upp til framtíðar. Óttinn er auðvitað og hefur alla tíð verið varðandi einhvers konar sameiningar, ég tala nú ekki um við Háskóla Íslands, að þetta verði skólanum að aldurtila, þarna sé verið að drepa skólann, það muni allt sogast í burtu, það verði ekkert eftir á svæðinu og menn séu einhvern veginn að skrifa undir dánarvottorð skólans með slíku. Ég ætla bara að leyfa mér að trúa því að við séum ekki að fara þá leiðina. Hæstv. ráðherra hefur talað þannig og ég veit að í samtali milli rektors HÍ og Háskólans á Hólum er mikill vilji til að byggja Háskólann á Hólum upp og efla enn frekar en til þess þarf að fara í framkvæmdir, bæði inni á Hólum og inni á Sauðárkróki þar sem núna er nýtt lagareldishús þar sem kennsluaðstaðan fyrir fiskeldisfræði verður. Það er gríðarlega mikilvægt að það verkefni klárist og fari af stað sem allra fyrst þannig að verkefnið fái trúverðugleika þannig að menn sjái að það sé raunverulega verið að fara að efla svæðið, efla skólann og efla starfsemina.
Fyrir þá sem ekki vita þá er það alveg ljóst og hefur verið allan tímann að kennsluhúsnæði fyrir lagareldið er ekki hægt að byggja upp á Hólum. Það þarf einfaldlega sjó og þarf sjólögn. Starfsemin hefur verið úti á bryggju eða úti á höfn á Sauðárkróki undanfarin ár en nú eru að verða breytingar á því húsnæði sem Hólaskóli hefur verið með til afnota þannig að það er nauðsynlegt að það verði ráðist í byggingu á nýju húsi á Sauðárkróki og það eru áætlanir um það. Ég bara hvet hæstv. ráðherra til að ýta því áfram eins hratt og hægt er þannig að við getum slegið á þessa hræðslu um að þetta muni leiða til þess að Háskóli Íslands muni soga allt til sín að norðan.
Við þurfum líka að tryggja Háskólanum á Hólum Brúnastaði, hesthúsið og kennsluna fyrir hestafræðina. Það er líka gríðarlega mikilvægt mál og partur af þessari uppbyggingu sem þarf að eiga sér stað. Menn kunna að spyrja: Af hverju er sá sem hér stendur að tala um uppbyggingu og uppbyggingu? Jú, vegna þess að staðreyndin er einfaldlega sú að það húsnæði sem Háskólinn á Hólum er í í dag, gamla skólahúsið á Hólum, er stórlaskað af myglu og kostnaðurinn við að fara í breytingar eða lagfæringar á þessu húsi, sem er náttúrlega bara mjög óhagkvæmt og ekki gott húsnæði í dag sem skóli eða kennsluhúsnæði, þó að það hafi verið kannski fyrir 50 árum síðan — þá bara uppfyllir það mjög illa þá staðla sem við erum að kalla eftir í dag varðandi kennslu. Þannig að ég held að það séu miklu meiri möguleikar í því að nýta það hús og aðrar eignir sem eru þarna á svæðinu í annað, t.d. ferðaþjónustu þannig að við getum lyft Hólastað aftur upp. Ég held að það séu gríðarlega mikil tækifæri fyrir ferðaþjónustu inni á Hólum.
En við þurfum að byggja þetta upp. Við þurfum að byggja upp lagareldishúsið inni á Sauðárkróki og kennsluhúsnæði fyrir það og húsnæði fyrir Brúnastaði og reiðhöllina og hestafræðina. Ef ég man rétt þá held ég að það hafi verið á sínum tíma settar 350 milljónir í kaup á Brúnastöðum þannig að eitthvað er til í það verkefni.
Í raun og veru er ég nú bara hingað upp kominn til að hvetja hæstv. ráðherra til dáða í þessu máli. Ég styð þetta mál og styð ráðherrann í þessu máli en það er alveg gríðarlega mikilvægt að við sjáum það, við Skagfirðingar og þeir aðrir sem unna Hólaskóla og Háskólanum á Hólum, að ótti þeirra sem halda því fram að Háskóli Íslands muni soga þetta allt saman til sín sé ekki á rökum reistur og það sé raunverulegur vilji bæði Háskóla Íslands, Háskólans á Hólum og hæstv. ráðherra að byggja upp öflugan, nútímalegan og framsækinn háskóla í Skagafirði.