opinberir háskólar.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra fyrir sína framsögu hér í dag og ég ætla að leyfa mér að segja fyrir mjög áhugavert mál og ég vil bara lýsa því yfir strax í upphafi að ég styð þetta frumvarp. Ég tel að það sé rétt að horfa til framtíðar með þessum augum og ég held að það sé einboðið að það séu of margir háskólar á Íslandi þannig að ég held að þetta sé rétt skref. Auðvitað skiptir máli hvernig þetta er gert og ég vil sérstaklega nefna, af því að hér hefur verið töluverð umræða um Hólaskóla eða Háskólann á Hólum, að ég treysti engum betur úr liði hæstv. ráðherra en honum sjálfum til að passa upp á það að menningarverðmætum og öðru verði haldið til haga og að það verði ekki gengið neitt á það og ekkert gefið eftir í þeim efnum þannig að það verði passað upp á að sagan á Hólum gleymist ekki. Í rauninni ættum við að gera meira úr henni, enda var þarna rekinn alla vega um tíma skóli í ferðamennsku og ég gat ekki heyrt annað af þeim sem hann sóttu en að það hefði verið framúrskarandi nám í skemmtilegu og sögulegu umhverfi.
Af því að ég nefndi hér að það væri ákveðið áhyggjuefni að við værum með að hluta til vanfjármagnað háskólakerfi og ekki síst kannski af því að við værum með of marga háskóla þá er nú samt rétt að nefna að auðvitað er samkeppni skóla líka af hinu góða. Ég held að við ættum ekki að stefna að því t.d. að vera með einn háskóla, ég held að það væri fjarri lagi, og að það sé skynsamlegt upp á að ná fram metnaði og vilja til að gera vel að það sé samkeppni á sviði háskóla á Íslandi og ég held að tveir háskólar í kannski þessu almenna starfi háskólanna ættu að vera það sem við stefnum á.
Svo er þetta spurningin um hitt og það eru þeir háskólar sem eru, ja, kannski myndi maður segja í sértækari starfsemi. Ég ætla að nefna sérstaklega Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, ég tel að sá háskóli hafi fengið í rauninni of litla athygli, leyfi mér bara að segja það. Þarna er unnið afskaplega gott starf og ég sé þann metnað sem þar er t.d. í því að ná í rannsóknarverkefni og að byggja upp þarna rannsóknir og þróun. Ég veit að sú sem stýrir þar málum er mjög öflug í að ná sér í samstarfsaðila og það er hrein unun að fylgjast með því hvað henni gengur vel að ná í rannsóknarverkefni.
Það er auðvitað alltaf þannig að það er erfitt að gera breytingar og við verðum að vera raunsæ í því hvað við ráðum við peningalega. Þess vegna styð ég þetta frumvarp og tel skynsamlegt að við horfum til framtíðar með það í huga að við búum til kerfi sem er öflugt, sterkt og vel fjármagnað en við þurfum samt að vera samkeppnisfær gagnvart öðrum háskólum, þ.e. við getum ekki boðið upp á að háskólar á Íslandi séu sveltir eða verði undir í baráttu við aðra háskóla. Við þurfum að passa vel upp á það.
Mig langar til að gera athugasemd við eitt sem ég veit að er kannski hjóm en mér finnst þessar nafngiftir sem við erum að gefa þessu í lögunum, þ.e. háskólasamstæðu og samstæðuháskóla og aðildarháskóla. Mér finnst þetta voðalegt torf, frú forseti. Ég held að við ættum að reyna að vanda okkur í þeim efnum að finna betri heiti á þetta. Ég held að það gæti verið hreinlega hluti af því að sameina þessa háskóla að finna einhver betri og þjálli nöfn á þetta þannig að maður hafi aukinn skilning á þessu og tengi betur við þetta.
Mig langar til að nefna líka að þetta mál fór í samráðsgátt, og það er vel. Þangað komu 19 umsagnir, ef ég man rétt, og allflestar mjög góðar, fannst mér. Mér fannst þar aðeins bera á því að það væri kvartað undan því að samráðstími hefði mátt vera lengri og ég geri þá ráð fyrir því að aðilar muni þá kannski skila inn viðbótarumsögnum þegar málið verður sent út frá allsherjar- og menntamálanefnd þannig að það verði þá hægt að fylla í það sem ekki náðist að koma fram með í þessum umsögnum. Ég ætla að segja að margar af umsögnunum eru í sjálfu sér ekki endilega neikvæðar en maður merkir að það sé ákveðin hræðsla við breytingar. Það er fullkomlega eðlilegt og ég held að við eigum að horfa kannski fram hjá því og reyna bara að sýna það í verki með samtali við forsvarsmenn þessara skóla og jafnvel sveitarfélögin að það standi til að efla þessa starfsemi. Ég held að það sé vel til þess fallið að gefa fólki líka tækifæri til að vera með í þessum breytingum þannig að fólk fái traust á því að það sé verið að horfa á að gera sem best úr þessu.
Ég veit að í gegnum tíðina hefur verið kvartað aðeins undan Háskóla Íslands, að það sé vonlaust að vera í samstarfi við þann háskóla því að það fari allir peningarnir í þann skóla. Ég held að menn hafi lært af reynslunni og ég heyri ekki annað á rektornum í Hólaskóla en að það sé horft bjartsýnum augum til þess að þetta gæti eflt þann skóla og það sé á jafnræðisgrundvelli sem þetta samtal fer fram.
Varðandi Landbúnaðarháskólann, af því ég nefndi hér áðan að mér fyndist Landbúnaðarháskólinn hafa staðið sig vel og þar væru öflugir stjórnendur, þá langar mig til að nefna að mér finnst við kannski gera of lítið af því að ætla þeim skóla hlutverk í því sem snýr að orkuskiptum m.a., aukinni þátttöku t.d. varðandi starfsemi okkar uppi á Grundartanga. Þar höfum við verið að velta fyrir okkur ýmsum lausnum hjá Þróunarfélagi Grundartanga sem gætu falið í sér einmitt samstarf við Landbúnaðarháskólann og mér finnst Landbúnaðarháskólinn eða þeir sem þar hafa verið verið framsýnir í því að skoða verkefni sem gætu fallið undir grænar lausnir, sem dæmi, og ég held að það sé alveg tækifæri þegar þú ert með öflugan hóp til að stunda rannsóknir, að ná samstarfi við stórfyrirtæki og jafnvel erlenda háskóla um að fá fjármagn til þess að geta rekið öflugt rannsóknarstarf. Og auðvitað ef menn ná sér á strik í þeim efnum og skila góðri vinnu og ég veit að það eru framúrskarandi vísindamenn þarna, þá hef ég engar áhyggjur af því að við náum ekki að fjármagna starfsemina. Og auðvitað ættum við að reyna að byggja háskólana þannig upp að þeir verði í sem mestu samstarfi við atvinnulífið þannig að atvinnulífið sjái um að fjármagna hluta af þeirri starfsemi og jafnvel stóran hluta af þeirri starfsemi sem þar fer fram, enda væru þá svo sannarlega skólarnir að fylgja atvinnulífinu og þjónusta atvinnulífið og hagur beggja væri þá góður, að ég tel.
Ég fékk ábendingu frá þeim í Stykkishólmi um að þeir hefðu áhyggjur af þessum háskólasetrum sem hafa verið stofnuð, að þau gætu mögulega týnst í þessum sameiningum. Ég vona að nefndin skoði það sérstaklega og að passað verði upp á að svo verði ekki.
Varðandi framhaldið á þessu máli þá ætla ég að leyfa mér að treysta því að nefndin geri vel í því að skoða þessa kosti og kíki í alla króka og kima í þessu. Það eru ákveðnar athugasemdir sem hafa verið gerðar og væntanlega mun þeim fjölga með því að þetta sé sent út í samráðsgátt þingsins og ég treysti því að þar verði fjallað með ábyggilegum hætti um þær athugasemdir.
Annars vil ég leyfa mér að segja og ítreka að ég styð þetta mál og ég tel að þetta sé nauðsynlegt skref til þess að efla þessa skóla og vona svo sannarlega að við náum að búa til úr þessu öflugar háskólasamstæður á Íslandi þó að þær verði mögulega færri en þær eru í dag.