opinberir háskólar.
Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir að fara yfir þetta mál hér. Sjálfur sit ég í allsherjar- og menntamálanefnd og öll málin í dag hafa farið eða munu fara inn í þá nefnd. Þetta mál sýnist mér í fljótu bragði vera virkilega gott mál. Hæstv. ráðherra fór nú ágætlega yfir það hér hvaða áhrif það getur haft.
En það er annað sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra að. Hann nefndi hér að fjöldi erlendra nemenda við háskólann hafi vaxið, þ.e. utan EES. Fyrsta spurningin til hæstv. ráðherra er hvers vegna hann telji að fjöldinn hafi vaxið svo. Svo er hér talað um gjöldin. Þau eru skilgreind sem þjónustugjöld en ekki skattar og mega ekki vera hærri en kostnaður. Þá velti ég því fyrir mér með kostnað: Hvaða tala er þetta? Ég held að kostnaður við háskólanám sé verulega niðurgreiddur á landinu. Hver gæti þessi kostnaður orðið? Ég velti fyrir mér hvort ráðuneyti hæstv. ráðherra sé búið að finna út úr þessu. Þetta er eitthvað sem skiptir máli. Þetta mun alveg örugglega með einhverjum hætti hafa áhrif á aðgengi eða eftirspurn eftir skólanum því ég held að ef menn borga fullan kostnað sé það (Forseti hringir.) verulega hár kostnaður. Þannig að þetta eru tvær spurningar: Hver er þessi kostnaður og hvers vegna hefur fjöldi nemenda vaxið svo mikið?