afsal þingmennsku.
Forseta hefur borist bréf, dagsett 19. janúar 2026, frá 6. þm. Suðurk., Guðbrandi Einarssyni. Bréfið er svohljóðandi:
„Ég, Guðbrandur Einarsson, 6. þingmaður Suðurkjördæmis, segi hér með af mér þingmennsku.
Virðingarfyllst, Guðbrandur Einarsson.“
Ég vil af þessu tilefni færa Guðbrandi Einarssyni þakkir fyrir störf hans á Alþingi. Ég óska honum fyrir hönd okkar allra velfarnaðar í framtíðinni.
Við þingmennskuafsal Guðbrands Einarssonar tekur Sandra Sigurðardóttir sæti hans á Alþingi.
Sandra Sigurðardóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og býð ég hana velkomna til starfa.