157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

mannabreytingar í nefndum.

[15:01]
Horfa

Forseti (Þórunn Sveinbjarnardóttir):

Forseti vill tilkynna að borist hefur erindi frá þingflokki Viðreisnar um mannaskipti í nefndum, sbr. 1. mgr. 16. gr. þingskapa, á þá leið að María Rut Kristinsdóttir taki sæti sem aðalmaður í umhverfis- og samgöngunefnd í stað Guðbrands Einarssonar og Sigmar Guðmundsson taki sæti sem varamaður í stað Maríu Rutar Kristinsdóttur í sömu nefnd. Einnig að Sandra Sigurðardóttir taki sæti sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og allsherjar- og menntamálanefnd í stað Maríu Rutar Kristinsdóttur og að lokum að Sandra Sigurðardóttir taki sæti sem varamaður í velferðarnefnd í stað Guðbrands Einarssonar.

Þessar mannabreytingar skoðast samþykktar án atkvæðagreiðslu ef enginn hreyfir andmælum.