157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samstaða um málefni Grænlands.

[15:03]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Frú forseti. Undanfarna daga hefur skapast óvenjuleg og grafalvarleg staða í alþjóðamálum sem á sér fá ef nokkur fordæmi í stjórnmálasögunni. Forseti Bandaríkjanna, Donald Trump, er á vegferð um málefni Grænlands sem veldur mikilli óvissu og boðar tolla á bandalagsríki Atlantshafsbandalagsins sem tengjast þessari deilu. Ísland á allt undir traustum og farsælum samskiptum við Bandaríkin. Það hefur verið hornsteinn öryggis okkar og utanríkisstefnu áratugum saman. Við Íslendingar, og ekki síst við Sjálfstæðismenn, lítum sögulega á Bandaríkin sem okkar helsta bandamann og við viljum að það samband standi sterkt þegar á reynir. Einmitt þess vegna skiptir öllu að Ísland sé vel vakandi núna, tali skýrt og sýni samstöðu hér heima fyrir án upphlaupa en líka án þess að vera áhorfandi að atburðum sem geta haft áhrif á öryggi, viðskipti og stöðu okkar í Norður-Atlantshafi og á norðurslóðum.

Því vil ég spyrja frú forsætisráðherra: Telur hún ekki tilefni til þess að kalla saman sem fyrst formenn allra stjórnmálaflokka á Alþingi til samráðs um þessa stöðu svo að Ísland tali af yfirvegun og einhug, bæði út á við til bandamanna okkar og inn á við til þjóðarinnar? Við Íslendingar stöndum með grænlensku þjóðinni og við munum virða rétt Grænlendinga til að ráða sínum örlögum sjálfir. Hvernig hyggst forsætisráðherra tryggja að slík samstaða og reglulegt samráð haldist svo við séum ekki að bregðast við í óðagoti heldur með skýrri stefnu og ábyrgð?