samstaða um málefni Grænlands.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Ég vil ítreka mikilvægi og nauðsyn þess að við stillum saman strengi í þeirri stöðu sem er komin upp þannig að við sýnum samstöðu hér á Alþingi. Einmitt í ljósi þess er nauðsynlegt að hér eigi sér stað virkt samráð og ég þakka forsætisráðherra fyrir að ætla að koma því á sem fyrst. Og einmitt í þessu ljósi vil ég spyrja hæstv. forsætisráðherra, þegar hún segir að við eigum ekki að ýkja ágreining heldur sýna samstöðu: Telur forsætisráðherra þá viturlegt, í ljósi þessarar stöðu sem nú er komin upp, að ríkisstjórnin ætli nú að rjúka af stað og hefja aðlögun að Evrópusambandinu, leggja áherslu á mál sem er augljóst að muni kljúfa samstöðu íslensku þjóðarinnar, einmitt nú þegar við eigum að leggja áherslu á mál sem sameina þjóðina? (Forseti hringir.) Ég get ekki séð að það sé að hjálpa Dönum nú í þessari stöðu þótt þeir séu fullgildir meðlimir í Evrópusambandinu í þessari deilu um Grænland. Væri því ekki sterkur leikur (Forseti hringir.) af hálfu forsætisráðherra að senda skýr skilaboð um að fresta allri umræðu og afgreiðslu varðandi aðild að ESB á meðan þessi óvissa ríkir í alþjóðamálum?