skipting málaflokka milli ráðuneyta.
Virðulegur forseti. Um helgina birtist tilkynning á vef Stjórnarráðsins um svokallað samkomulag milli tveggja ráðherra, nánar tiltekið hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra og hæstv. mennta- og barnamálaráðherra, um að sá hinn síðarnefndi færi með tiltekinn málaflokk sem eftir sem áður stæði undir ráðuneyti hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra. Um er að ræða málaflokkinn uppbyggingu hjúkrunarheimila. Forsætisráðherra hefur bersýnilega staðfest þetta samkomulag.
Virðulegur forseti. Það er tvennt við þetta að athuga, bæði efnislega en líka formlega. Þótt mönnum kunni að þykja það leiðinleg pólitík að þurfa að ræða mál sem menn vilja kannski kalla lagatæknileg þá langar mig að varpa fram nokkrum spurningum til hæstv. forsætisráðherra um formið á þessum gerningi. Það eru í gildi lög um Stjórnarráðið. Ég vil vita hvort hæstv. forsætisráðherra telji að þau lög geri ráð fyrir því að ráðherra sem ber ábyrgð á málaflokki, og er tilgreindur sem slíkur í forsetaúrskurði, framselji öðrum ráðherra verkefni með samkomulagi eins og hér um ræðir. Í öðru lagi vil ég spyrja hvort hæstv. ráðherra telji að lögin geri ráð fyrir því að ráðherra hafi með höndum verkefni sem ráðuneyti hans eru ekki falin í forsetaúrskurði.
Mig langar líka að vita hvort hæstv. forsætisráðherra líti þannig á að hæstv. barnamálaráðherra fari þannig með fjárhagsmál skrifstofu í öðru ráðuneyti, þ.e. skrifstofu sem fer með málefni uppbyggingar hjúkrunarheimila í ráðuneyti félags- og húsnæðismála. Að sama skapi vildi ég vita hvort hæstv. ráðherra líti þannig á að hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra fari ekki með mál sem samkvæmt forsetaúrskurði heyra undir hans ráðuneyti. Erum við að horfa fram á að það sé ráðherra í Stjórnarráðinu (Forseti hringir.) sem fari ekki með mál sem heyra undir hans eigið ráðuneyti?