157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

aðgerðir stjórnvalda vegna verðbólgu.

[15:37]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Daði Már Kristófersson):

Forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir hans spurningu. Það er auðvitað fráleitt að halda því fram, algerlega fráleitt að halda því fram að ekki sé verið að bregðast við. Þvert á móti er verið að bregðast við. Ég minnist þeirrar gagnrýni sem fjármálaáætlun þessarar ríkisstjórnar fékk í þessum þingsal fyrir að vera óraunsæ, of bjartsýn og of brött, en hvað sýndum við? Við fórum nákvæmlega eftir henni og það er það sem við munum gera áfram. Það að kalla það að bregðast ekki við skil ég bara alls ekki. Í hvaða heimi er það að bregðast ekki við að bregðast við ári áður en til átaka kemur? Og það að tala um að ég vísi á Seðlabankann, Seðlabankinn hefur hér hlutverk. Hann hefur hlutverk til skemmri tíma í því nákvæmlega að stilla af eftirspurn, hlutverk sem ríkissjóður getur ekki brugðist við og allar tilraunir til þess í fortíðinni hafa einfaldlega endað með að ríkið hefur sullað peningum út í hagkerfið með tilheyrandi þenslu (Forseti hringir.) sem síðan hefur orðið að bregðast við vegna verðbólgu sem það skapar. Nákvæmlega það ástand sem ég er að takast á við núna. (Gripið fram í: Ertu að tala um 140 …)