samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Varðandi fjármögnun samgönguáætlunar, eins og ég sagði hér í óundirbúnum fyrirspurnum, þá tökum við mið af fjármálaáætlun og fjármálaáætlun gerir ráð fyrir hallalausum fjárlögum á næsta ári, 2027. Við erum því innan þess ramma og það er það sem við erum að spila eftir sem ég tel mjög mikilvægt varðandi fyrsta áfangann eða varðandi fimm ára aðgerðaáætlunina sem er hluti af samgönguáætlun. Þegar kemur hins vegar að innviðafélaginu sem sér um jarðgangaframkvæmdir, því við ætlum að rjúfa kyrrstöðu þar, þá er fjármögnun þess á sjálfbærum fjárhagslegum grundvelli sem þýðir að verkefnið mun standa undir kostnaði við undirbúning, framkvæmd, rekstur og fjármagn með tekjum. Það er eiginfjárframlag, lánsfjármögnun, gjaldtaka og aðkoma fjárfesta. Eigið fjármagn er árlegt framlag ríkisins til félagsins á grundvelli samnings, lánsfjármögnun sem er þá væntanlega með ríkisábyrgð þar sem félagið tekur lán til margra ára, og svo er gjaldtaka (Forseti hringir.) af samgöngumannvirkjum og loks aðkoma fjárfesta. Við munum setja eignir inn í félagið sem eru þá Vaðlaheiðargöng, sem eru tekjuberandi, líka Hvalfjarðargöng, (Forseti hringir.) sem eru ekki tekjuberandi, en það má veðsetja Hvalfjarðargöng eins og við veðsetjum húsið okkar þó að við séum ekki með tekjur.