samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Ég spyr því þetta eru lykilmál varðandi það hvert við stefnum í efnahagsmálum. Við erum í janúar 2026 og það eru ekki nema örfáir mánuðir þar til að ríkisstjórnin þarf að leggja fram frumvarp til næstu fjárlaga. Þess vegna skiptir þessi heildarmynd gríðarlega miklu máli og það skiptir líka máli að við vinnum að henni saman.
Mig langar að einbeita mér að tveimur dýpri spurningum. Í fyrsta lagi talaði ríkisstjórnin um að hækka ætti veiðigjöld svo hægt væri að fara í fjárfestingar í innviðum á landsbyggðinni. Getur það verið, hæstv. ráðherra, að við séum að sjá Vestmannaeyjar greiða hæstu veiðigjöldin en að á sama tíma sé á ákveðinn hátt verið að skerða þjónustu sem snýr að Herjólfi varðandi fjárframlög til dýpkunar hafnar og hvernig Herjólfur er líka skilgreindur sem gerir það að verkum að það er ekki sama umgjörð og kannski ætti að vera miðað við að þetta er þjóðvegur Vestmannaeyja? Getur það verið? Í annan stað: Hvers vegna erum við ekki að beina sjónum meira að sjóvörnum? (Forseti hringir.) Þær eru gríðarlega mikilvægar fyrir Suðurnesin og fyrir Vík í Mýrdal. Hvers vegna erum við ekki að setja þær hærra í þessari áætlun?