samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvörin sem mér fundust nú byggjast frekar á útúrsnúningum og hálfgerðum skætingi heldur en svörum. Það eru ekki rök að setja samgönguáætlun ekki í samráðsgátt að hún sé byggð á einhverri annarri áætlun og það hafi ekki unnist tími. Það er búið að vera nægur tími, fullkomlega nægur tími, bara þannig að það sé sagt. Mig langar — hef ég tvær mínútur?
(Forseti (BHar): Þú átt 20 sekúndur eftir.)
Þá ætla ég bara að slaufa seinni spurningunni sem ég ætlaði að vera með en ítreka við hæstv. ráðherra varðandi t.d. fjögurra vikna umsagnarfrest og beini því þá til þingsins alls að taka undir þá ósk mína að umsagnarfrestur verði lengri. Ég óska eftir því að hæstv. innviðaráðherra — (Forseti hringir.) hann getur sjálfur haft góð áhrif á það að sá frestur verði lengri.