157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:05]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Að sjálfsögðu þurfum við að miða samgönguáætlun við fjármálaáætlun. Fjármálaráð fjallar um tekjur og gjöld fimm ár fram í tímann og samgönguáætlun snýst um útgjöld ríkissjóðs, hvar við ætlum að byggja vegi, hvernig við ætlum að haga viðhaldi og hvernig við ætlum að byggja vegi, hafnir o.s.frv., þannig að við erum bundin af fjármálaáætlun. Við urðum að sjá hvernig fjármálaáætlun leit út og hún var samþykkt 14. júlí síðastliðinn.

Varðandi samráðið. Eins og ég sagði í framsögu minni áðan þá byggir áætlunin á stefnumótunarferli sem hófst árið 2021, endaði síðan með opnum fundum í ágúst síðastliðnum. Það er ákvörðun nefndarinnar ef hún vill lengja umsóknarferlið, ef þeir hafa áhuga á því. Ég tel ekki þörf á því. Ég hélt blaðamannafund í byrjun desember hvað þetta varðaði og helstu atriði í samgönguáætlun eru búin að liggja fyrir. Ég tel að þetta sé góð áætlun, mjög raunsæ og hún er að fullu fjármögnuð. Það er annað en óskalistarnir sem var reynt að leggja hérna fram árið 2023.