samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Varðandi fyrirspurn þingmannsins um þjónustusamninginn milli ríkis og Isavia og hvort þar hafi framkvæmdapeningar verið teknir út eða hvort þeir séu til staðar þá voru allar fjárveitingarnar notaðar samkvæmt þjónustusamningnum. Við erum núna að leggja til það sem stendur einfaldlega varðandi nýframkvæmdir. Varðandi varaflugvallargjaldið erum við að nota það algerlega í samræmi við það sem lagt var upp með, svo það komi algerlega skýrt fram. Varðandi þessar 350 milljónir þá get ég bara látið kanna það sérstaklega hvort þessir peningar hafi verið teknir sérstaklega út úr og þá séum við að fara í bága við lögin um varaflugvallargjaldið.