samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra, sem og aðrir hv. stjórnarþingmenn, hafa komið hér margoft upp og talað um mikilvægi þess að byggja hér upp og fara í innviðauppbyggingu, sérstaklega kringum það sem snýr að varnar- og öryggismálum. Þess vegna langar mig að spyrja hæstv. ráðherra, sérstaklega í ljósi þess að hafnir eru líklega ein mikilvægustu mannvirki sem snúa að varnar- og öryggismálum og líka þegar kemur að verðmætasköpun í landinu: Eru hafnir landsins í þessari samgönguáætlun sem nú er verið að leggja fram? Er verið að minnka Hafnabótasjóð um 200 milljónir, lækka kostnaðarhlutfall ríkisins og auka kostnaðarhlutfall sveitarfélaganna?
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Finnst honum þetta vera í samræmi við kaflann þar sem hvort tveggja er talað um verðmætasköpun og öryggis- og varnarmál, að draga í rauninni úr fjárframlögum ríkisins til hafnarmannvirkja?