157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:13]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina og andsvarið. Ég er sammála því að hafnir eru gríðarlega mikilvægar í okkar samfélagi sem eyju í Norður-Atlantshafi og þær hafa vissulega tvöfalt notagildi þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. Hlutfall ríkisins til hafnarframkvæmda, nýframkvæmda, hefur verið allt að 60% eins og segir í lögunum. Við ætlum að breyta þessu og það er vegna þess að það eru nokkrar hafnir sem standa nú vel fjárhagslega og því ástæða til að endurskoða þessi styrkhlutföll hafnanna og hafnarframkvæmda. Það er vegna þess að fjárhagsleg staða hafnanna er einfaldlega að verða betri. Þær eru að verða fjárhagslega sjálfbærar og meira að segja eru sumar hafnir í samkeppni við aðrar hafnir sem standa algerlega á eigin fótum. Við munum gera þetta í nokkrum skrefum þannig að fyrir árið 2027 verður þetta ekki gert strax en það verður fyrirsjáanleiki hvað þetta varðar. Þetta er breyting á styrkhlutdeild og lækkun til hafna sem uppfylla ákveðin skilyrði, (Forseti hringir.) þ.e. að meðalárstekjur séu yfir 750 millj. kr. og meðalframlegð eða EBITDA sé yfir 300 millj. kr. Þetta er til þess að ríkið geti nýtt peningana betur (Forseti hringir.) og fé fari til þeirra hafna sem virkilega þurfa á því að halda en ekki til þeirra hafna sem geta staðið undir eigin fjármögnun (Forseti hringir.) og framkvæmdum sjálfar.