157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:14]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil kannski fá að leiðrétta hæstv. ráðherra. Þar sem ég þekki vel til t.d. hafnarsjóðs Fjarðabyggðar tel ég að hann hafi ekki þegið krónu frá ríkissjóði síðan að hann fékk framlag úr Hafnabótasjóði við uppbyggingu á álvershöfninni. Síðan þá hefur verið framkvæmt fyrir marga milljarða í Fjarðabyggðarhöfnum. Það hefur ekki komið króna frá ríkinu enda snýr þetta ekki að stærri höfnunum. Það vitum við. Þetta snýr að minni höfnunum og höfnum sem þurfa á þessum peningum að halda. Það er synd að sjá að þær eigi að taka á sig stærra kostnaðarhlutfall.

Mig langar rétt í lokin, virðulegur forseti, að velta fyrir mér í rauninni almennt samgönguáætlun og fá kannski ráðherra aðeins til að velta því fyrir sér með mér hvaða gildi svona áætlun hefur. Við sjáum að langstærstur hluti fjármunanna er settur á árin 2031–2036, langstærstur hluti. Margir hv. þingmenn hér verða nú bara komnir á eftirlaun þegar þessi hluti áætlunarinnar gengur í gegn. Hvers vegna erum við að setja svona áætlun fram? Nú sér maður að það er verið að breyta forgangsröðun, það er verið að breyta áherslum (Forseti hringir.) á milli áætlana, á milli ráðherra. Er ekki bara langbest, hæstv. ráðherra, að setja bara fram fimm ára áætlun og vera ekkert að koma með áætlanir til 15 ára sem í raun hafa kannski ekkert að segja nema að belgja út tölurnar þannig að hæstv. ráðherra geti komið og sagt að það sé verið að setja 1.000 milljarða í samgönguáætlun? (Forseti hringir.)