samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Við ræðum hérna í dag í fyrri umræðu samgönguáætlun ríkisstjórnar eða innviðaráðherra. Það er gott að áætlunin hafi litið dagsins ljós enda höfum við beðið hennar lengi. Um er að ræða stórmál sem krefst yfirlegu margra og þess vegna, eins og ég gerði í andsvörum við ráðherra áðan, verð ég að lýsa furðu á að hún hafi ekki verið sett í samráðsgátt stjórnvalda í aðdraganda framlagningar og þannig vandað betur til verka. Nógu lengi hefur verið beðið eftir áætluninni. Þess vegna finnst mér eðlilegt að umsagnarfrestur um áætlunina verði lengri en ella og að það verði samþykkt að fresturinn verði til að mynda fjórar vikur þar sem þetta er viðamikið plagg og það þurfa margir að senda inn umsagnir. Helstu rökin eru að þetta var ekki sett í samráðsgátt. Þannig hefðu margir getað haft áhrif á málið áður en það var lagt fram hér í þinginu.
Þá verð ég að segja hérna í upphafi að mér finnst ráðherra málaflokksins og aðrir ráðherrar í ríkisstjórninni, sem hafa barið sér á brjóst í tilefni framlagningar áætlunarinnar, hafa verið ansi stóryrtir þegar því er haldið fram að ríkisstjórnin sé byrjuð að ræsa vélarnar. Ég veit ekki hvaða vélar er verið að ræsa, ég hef ekki orðið vör við það. Eins og ég sé það í áætluninni er þetta meira fyrir næstu ríkisstjórnir. Það er ekkert mikið á döfinni árið 2026, eitthvað að skríða af stað 2027. Svo eru náttúrlega þingkosningar í síðasta lagi 2028, en vonandi fyrr. Þannig að það er ekki mikið að fara að gerast.
Svo er sagt að samgönguáætlun sé fullfjármögnuð. Ég held að það standist enga skoðun. Ég hlustaði á svör hæstv. innviðaráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum við spurningum hv. þm. Bergþórs Ólasonar og ég myndi bara segja ekki svör, vegna þess að svör hæstv. innviðaráðherra gefa mér ekki nokkra hugmynd um hvernig þessi áætlun er fjármögnuð. Þetta er viðamikil áætlun fyrir næstu ríkisstjórnir til að framkvæma og þar er fjallað um samgöngukerfið í heild sinni en í umræðunni hefur einna mest borið á breyttri forgangsröðun í jarðgangagerð. Ég ætla að koma aðeins inn á það á eftir. En eins og ég sagði áðan í stuttri ræðu verður ekkert hægt að dekka allt sem þarfnast yfirlegu þannig að ég ætla bara að stikla á stóru.
Það segir í samgönguáætlun sem við ræðum hér í dag, með leyfi forseta:
„Flýtiframkvæmdir um land allt, samkvæmt samgöngusáttmálanum, jarðgangaáætlun eða samvinnuverkefnunum, gera ráð fyrir að fjármögnun verði í heild eða að hluta með innheimtu veggjalda. Nánari útfærsla þeirrar innheimtu mun fara fram á vettvangi sameiginlegrar verkefnastofu innviðaráðuneytisins og fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Mikilvægt er að til framtíðar geti tekjuöflun ríkisins af umferð staðið undir nauðsynlegri fjárfestingu, skapað sveigjanleika til þess að flýta þjóðhagslega arðbærum framkvæmdum og viðhaldið áframhaldandi hvata til orkuskipta.“
Mig langar að endurtaka: „Flýtiframkvæmdir um land allt, samkvæmt samgöngusáttmálanum, jarðgangaáætlun eða samvinnuverkefnunum, gera ráð fyrir að fjármögnun verði í heild eða að hluta með innheimtu veggjalda.“
Veiðiskatturinn sem tvöfaldaður var af þessari ríkisstjórn átti að fara í vegasamgöngur eða viðhald vega, aðallega á landsbyggðinni. Kílómetraskatturinn, vöruskatturinn á ökutæki og allar hinar skattahækkanirnar sem þröngvað var upp á landsmenn um áramót áttu að fara í samgöngumál. Nú sé ég að ríkisstjórnin ætlar til viðbótar við allar skattahækkanirnar að fara að innheimta veggjöld. Jæja, segi ég nú bara. Þá vitum við það. Planið virðist vera að skattleggja allt í drep. Það virðist vera planið.
Í samgönguáætluninni segir eftirfarandi um höfuðborgarsvæðið, með leyfi forseta:
„Á höfuðborgarsvæðinu er unnið að stórfelldri uppbyggingu innviða fyrir alla ferðamáta í samvinnu við sveitarfélögin á svæðinu. Tímabærar framkvæmdir á stofnvegum, þar sem umsvifamest er lagning stórra umferðaræða í stokka, munu greiða fyrir umferð, draga úr umhverfisáhrifum og skapa mannvænni byggð í grennd við umferðaræðar. Þróun hágæðaalmenningssamgangna, Borgarlínu, ásamt nýju stofnleiðakerfi hjólreiða er svo lykilþáttur í þróun svæðisins í átt að sjálfbærara borgarsamfélagi. Aukin hlutdeild almenningssamgangna í ferðamátavali á svæðinu mun greiða fyrir umferð og halda aftur af aukningu umferðartafa á svæðinu.“
Virðulegur forseti. Ég finn engar viðlíka áætlanir í samgönguáætlun fyrir landsbyggðina. Þið megið ekki misskilja mig. Ég vil hafa góðar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Ég vil hafa góðar samgöngur um land allt. Þarna finnst mér ekki gætt jafnræðis. Það er mikil áhersla á höfuðborgarsvæðið, t.d. borgarlínuna. Af hverju er það mál ekki hugsað upp á nýtt, hætt við eða í það minnsta skorið niður? Ég er á því að fjárausturinn í þessa borgarlínu sem hefur verið og heldur áfram væri hægt að nýta betur í aðra þætti samgangna, t.d. á landsbyggðinni sem er svelt miðað við höfuðborgarsvæðið.
Mér hefur fundist of áberandi í orðum ríkjandi valdhafa á Íslandi að ef eitthvað á að vera hægt að gera á landsbyggðinni í samgöngumálum þurfi að hækka skatta. Ríkisstjórnin kýs raunar að kalla hlutina öðrum nöfnum; kerfisbreytingar, leiðréttingar, gjöld o.s.frv. Mér finnst bara óþolandi að hlusta á slíka röksemdafærslu og ég minni á að á Íslandi er enginn skattafsláttur eftir búsetu. Það ætti hæstv. innviðaráðherra að vita jafn vel og ég, verandi mjög tengdur Noregi, og nú er ég t.d. að vísa til Noregs, en þar er skattafsláttur fyrir byggðir sem eru norðar. Það er enginn skattaafsláttur á kílómetraskattinn fyrir að aka á slæmum vegum sem eru víða á landsbyggðinni. Þetta er einfalt fyrir mér, landsbyggðin á sama rétt á góðu vega- og samgöngukerfi og höfuðborgarsvæðið. Staðreyndin er nefnilega sú að í mörgum landshlutum er stór hluti þjóðvegakerfisins enn á malarvegum sem eru holóttir og rifflaðir. Þolinmæði íbúa á landsbyggðinni er raunar aðdáunarverð. Ég held að það væri allt tryllt hérna á höfuðborgarsvæðinu ef vegakerfið væri eins og það er víða á landsbyggðinni. Mig langar að hvetja hæstv. innviðaráðherra til að gera enn betur að laga þessa malarvegi á landsbyggðinni.
Í liðnum um jákvæða byggðaþróun segir um almenningssamgöngur á landsbyggðinni: „Unnið verði að því í samstarfi ríkis og sveitarfélaga að almenningssamgöngur á landsbyggðinni verði efldar þar sem grundvöllur er til þess.“ Markmiðið, eins og ég sé þetta miðað við að hafa lesið þetta í áætluninni, virðist ekki vera að efla almenningssamgöngur bókstaflega um land allt heldur einblína á þá hluta landsins þar sem talinn er grundvöllur fyrir þeim. Þannig að ég hlýt að spyrja: Hvernig fer þetta mat fram? Ef hæstv. ráðherra kemur hingað upp í andsvör við mig þá væri bara frábært að fá svör við því. Hvernig fer þetta mat fram?
Ég á lítinn tíma eftir þannig að ég verð að sleppa ýmsu sem ég ætlaði að fjalla hérna um og fara í innviðafélagið. Sundabraut er að sjálfsögðu fyrir margt löngu tímabær framkvæmd og sé ég í þessari áætlun að framkvæmdir verða fjármagnaðar með gjaldtöku og síðan er verkefninu vísað til innviðafélags. Þetta er ekki fjármagnað eins og ég sé þetta. Síðan varðandi innviðafélagið og jarðgöngin og ef hæstv. innviðaráðherra kemur í andsvör við mig þá væri fínt að hann gæti svarað því: Hvenær á að hefja boranir? Þegar ég horfi á áætlunina sé ég ekki að það verði hafnar boranir á þessu kjörtímabili. Þetta plan um jarðgangagerð er bara plan fyrir næstu ríkisstjórn eða næstu ríkisstjórnir. Ef ráðherra kemur í andsvar væri fínt að fá svör við því.
Mig langar líka að nefna þessu tengdu að ég skil reiði Austfirðinga fullkomlega. Ég skil hana fullkomlega hvað varðar Fjarðarheiðargöng þar sem mér skilst raunar að sé tilbúið að bora samkvæmt síðustu samgönguáætlun. Fyrri áætlun var kippt úr sambandi með nýrri ríkisstjórn og hverju er þá að treysta? Hins vegar vil ég líka nefna að Norðvesturkjördæmi kemur mjög vel út varðandi áætlanir um jarðgangagerð, þannig að ég ætla ekki að kvarta yfir því. En ég skil fullkomlega reiði Austfirðinga, fullkomlega. Því miður er tíminn búinn þannig að ég kemst ekki í kjördæmapotið. [Hlátur í þingsal.]
(Forseti (BHar): Forseti minnir á að ræðutíminn er eingöngu tíu mínútur í fyrstu ræðu þegar um þingsályktunartillögu er að ræða.)