samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég vil bara byrja á því að hvetja hv. þingmann að kynna sér tillögu um samgönguáætlun fyrir árin 2026–2030. Þar erum við að stórauka framlög til viðhalds og þjónustu í vegakerfinu. Bara á síðasta ári fórum við í hátt í 30% aukningu með 3 milljarða kr. viðbótarframlagi til viðhalds á vegum landsins, sérstaklega á Vesturlandi, vissulega líka á Suðurlandi og fyrir norðan. Þetta mæltist alveg gríðarlega vel fyrir, gríðarlega vel, og var mjög mikilvægt.
Varðandi veiðigjaldið þá er það mikið til að fara í viðhald og þjónustu. Undanfarin ár hafa verið settir 12–13 milljarðar kr. í viðhald. Við erum bara á þessu ári að fara í 17,5 milljarða, úr 12–13 milljörðum, og svo á næsta ári, 2027, 2028, 2029 og 2030, eru það 20 milljarðar á hverju einasta ári, 20 milljarðar á hverju einasta ári, fer úr 12–13 milljörðum. Þetta er aukningin. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli. Við erum að blása til sóknar í nýframkvæmdum um land allt. Við erum að hefja framkvæmdir við Sundabraut. Við stefnum á að útrýma einbreiðum brúm á hringveginum. Við munum tryggja farnetsamband á öllum stofnvegum og helstu tengivegum. Við munum rjúfa kyrrstöðuna í jarðgangagerð og það munum við gera með innviðafélagi. Það hafa verið óskalistar lagðir fram undanfarin ár í samgönguáætlun varðandi forgangsröðun í jarðgangagerð en það hafa ekki verið gerð nein jarðgöng, það hefur ekkert verið borað síðan Dýrafjarðargöng voru kláruð árið 2020. Það liggur klárt fyrir. Varðandi vetrarþjónustuna þá erum við þar með aukningu um tæpa 14 milljarða frá tillögu um samgönguáætlun sem lögð var fram haustið 2023. Bara á næstu fimm árum áætlum við að lengd tengivega með bundnu slitlagi aukist úr 1.391 km í 1.545 km. Það er mikil aukning. Þannig að það að halda því fram að þessi samgönguáætlun sé ekki um eitt eða neitt er einfaldlega eins rangt og það getur verið.
Varðandi innviðafélagið þá er það fjármagnað með árlegu eiginfjárframlagi samkvæmt samningi við ríkið. Það verða líka settar inn eignir. (Forseti hringir.) Sett verða inn Vaðlaheiðargöng sem eru tekjuberandi. Hvalfjarðargöng verða líka sett inn sem eru ekki með tekjur í dag. Það er eign. Fólk veðsetur húsið sitt og það er ekki að leigja það á sama tíma.(Forseti hringir.) Það er lánsfjármögnun, gjaldtaka samgöngumannvirkja og fjárfesting lífeyrissjóða m.a., þannig að ég skil ekki ræðu hv. þingmanns. (Forseti hringir.) Ég skora á hana að hlusta á þetta og styðja við bakið á þessari áætlun sem er gríðarlega mikilvæg fyrir landið allt og ekki síst fyrir Norðvesturkjördæmi, kjördæmi þess þingmanns sem talaði hér á undan mér.
(BHar: Forseti minnir hæstv. ráðherra á að virða tímamörkin. Þau eru núna tvær mínútur þar sem tveir hafa óskað eftir því að veita andsvar.)