157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:36]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég heyrði nú engri spurningu beint til mín þannig að mig langar að koma hérna inn á almenningssamgöngurnar á landsbyggðinni. Ég nefni dæmi úr Borgarbyggð, mínu heimahéraði. Nú um áramót tók gildi ný ákvörðun, ég er að tala um leið 81. Þar er ferðum fækkað úr daglegum ferðum alla virka daga niður í aðeins í þrjá daga í viku og samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni verður leið 81 lögð niður eftir yfirstandandi skólaár þar sem fjármagn skortir. Þarna virðist ekki hafa farið fram neitt mat, þarna skortir bara fjármagn. Ég kem betur inn á það hérna á eftir. Fyrir íbúa Borgarbyggðar þýðir þetta að reglulegar og öruggar samgöngur hverfa nánast með öllu. Leið 81 er nefnilega mikilvæg tengileið t.d. við leið 57 og er hluti af tengivirki almenningssamgangna á landsbyggðinni. Þau rök halda ekki vatni að það sé innan sveitarfélags, en ég heyri að þau rök hafa verið notuð gagnvart Borgarbyggð. Það er ekki mikill hvati til sameiningar ef slík eru rökin sem menn hengja sig í til að skera niður. Mér skilst að hér vanti tæpar 12 millj. kr. hjá Vegagerðinni til að geta haldið þessu úti. Fjárhæðirnar eru nú ekki hærri. Ég minni á það að Borgarbyggð er víðfeðmt sveitarfélag. Það hefur verið sameinað, það eru 13 sveitarfélög sem hafa sameinast og íbúar verða að geta treyst á samgöngur til að sækja nám, vinnu og þjónustu og það að skerða þjónustu með þessum hætti, að leggja leið 81 niður, setur stórt strik í reikning skóla, vinnustaða, íþrótta- og tómstundastarfs o.s.frv. Það er því bara mjög mikilvægt að þessi ákvörðun verði endurskoðuð og ég biðla til ráðherra (Forseti hringir.) að þetta verði endurskoðað og þessu verði komið í lag.