157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:45]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir seinna andsvar. Hann spyr um tímalínu. Það er alveg rétt: Samgönguáætlun er lögð fram miklu seinna en áætlað var. Hverju sætir? Á því hefur maður í sjálfu sér ekki fengið skýringar en það stóð til að leggja áætlunina fram, held ég, í haust, í síðasta lagi í byrjun nóvember, en nú er komið í lok janúar þar sem við erum að taka fyrri umræðu svo tímaramminn er þröngur. Mér finnst febrúar eiginlega búinn þótt janúar sé ekki enn þá búinn. Síðan kemur mars, páskar, tveggja vikna pása og svo koma sveitarstjórnarkosningar. Ég hef í rauninni áhyggjur af vinnubrögðunum. Ég hef áhyggjur af vinnubrögðunum vegna þess að þetta er að gerast ítrekað, mál koma seint og illa inn í þingið og svo er ætlast til þess að við afgreiðum þau á handahlaupum. Það er ekki hægt að gera það með samgönguáætlun. Ég held því að við þurfum að halda mjög vel á spöðunum ef við ætlum að ná að klára þetta mál áður en þing fer í frí í sumar, eða hv. þingmaður talaði um vor. Ég veit ekki hvort það er vor í júní, ég vil frekar tala um sumar. Ég held því að við þurfum að hafa okkur öll við að ná að klára það. Samt vil ég ítreka að það er mikilvægt að umsagnarfrestur sé rúmur og góður, ekki síst vegna þess að þetta var ekki sett í samráðsgátt og það er ekki eins og hagaðilar hafi ekkert annað að gera en að skrifa umsagnir. Það þarf að gefa rúman tíma til að við getum unnið þetta vel og að sjálfsögðu hljóta allir að vilja vinna þetta mál vel.