157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:52]
Horfa

Tómas Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil að sjálfsögðu taka undir með hv. þm. Bergþóri Ólasyni frá því í óundirbúnum fyrirspurnum áðan og koma fram heillaóskum til hæstv. ráðherra með nýja erfingjann.

Mig langaði í þessu andsvari mínu við hæstv. ráðherra að koma aðeins til höfuðborgarinnar þar sem ég er nú þingmaður Reykjavíkur. Varðandi þessa 311 milljarða kr. í samgöngusáttmálanum þá koma 143 frá ríkinu. Það er auðvitað vel að það eigi að fara í miklar samgönguúrbætur á höfuðborgarsvæðinu og þá líka í Reykjavík þar sem obbi landsmanna býr. En það hefur kannski ekki legið neitt sérstaklega skýrt fyrir hvernig þessir 143 milljarðar eigi að vera fjármagnaðir. Það stendur í samgönguáætluninni sjálfri, í þingsályktunartillögunni, að þetta verði að hluta til gert með flýti- og umferðargjöldum á höfuðborgarsvæðinu, sem er þá eitthvað sem ég myndi halda, nema hæstv. ráðherra leiðrétti mig, að tæki smá tíma til umræðu hérna í þinginu og ráðherra hefur ekki mikinn tíma til að vinna með í grunninn. Er það raunin eða verður þetta bara mjög einfalt, það verði bara skattahækkanir á íbúa hér sem munu einhvern veginn greiða götuna fyrir þessa 143 milljarða sem ríkið hefur skuldbundið sig til að koma með inn í þessa 311 milljarða í samgönguáætlun til 2030?