157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[16:54]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni góðar kveðjur vegna barns sem ég eignaðist núna á dögunum. Varðandi samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þá er það gríðarlega mikilvægur sáttmáli. Það er líka vert að spyrja: Af hverju erum við með sérstakan sáttmála varðandi samgöngur á höfuðborgarsvæðinu? Jú, þetta er m.a. að norrænni fyrirmynd og vegna þess að vegir sveitarfélaganna eru þéttriðið net og þar eru líka í þéttbýli þjóðvegir sem Vegagerðin ber ábyrgð á og það er gríðarlega mikilvægt að ná góðu samkomulagi við sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Varðandi fjármögnun samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins þá er, eins og ég sagði áðan, samgönguáætlun innan fjármálaáætlunar. Fjármagnið sem kemur frá skattpeningum þjóðarinnar samkvæmt fjármálaáætlun er það sem mun greiða fyrstu fimm árin. Svo kemur endurskoðuð fjármálaáætlun og þá sjáum við enn þá lengra fram í tímann o.s.frv. Þessir 143 milljarðar eru samkvæmt þessu skattpeningar og það eru ekki neinar upplýsingar um það að við séum að auka skattpeninga, auka skattheimtu vegna samgönguáætlunar. Það er ekki svo. Við erum bara bundin innan ramma fjármálaáætlunar. Það er líka mjög mikilvægt í þessu sambandi að sveitarfélögin koma á móti með 12,5%, minnir mig, og svo kemur ríkið með á móti. Varðandi flýtigjöldin sem er gert ráð fyrir í samgöngusáttmálanum þá hefur ekki verið tekin nein ákvörðun um að taka þau upp eða kveða á um þau. Það er stórpólitískt mál sem og önnur veggjöld. Og svo það komi fram hérna þá eru engin áform um að hefja skyndilega gjaldtöku fyrir samgöngumannvirki sem þegar eru fyrir hendi, hvorki flýtigjöld á höfuðborgarsvæðinu né úti á landi. Það eru hins vegar veggjöld í Vaðlaheiðargöngum. Það koma veggjöld á Ölfusárbrú og á þau mannvirki sem við ætlum að fara að byggja. Sundabraut verður með veggjöld. (Forseti hringir.) En það eru engin áform um skattahækkanir sérstaklega út af samgönguáætlun eða samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins.