samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Fyrst varðandi sáttmála höfuðborgarsvæðisins þá er þar kveðið á um að ríkið greiði 87,5% af stofnkostnaði við verkefnin og sveitarfélög 12,5. Beint framlag ríkisins af samgönguáætlun eru 2,8 milljarðar kr. en önnur fjármögnun ríkisins nemur um 4 milljörðum kr. á ári. Í uppfærðum samgöngusáttmála kemur fram að tæp 20% af fjármagni til verkefna samgöngusáttmálans frá 2019–2040 muni koma af samgönguáætlun. Rúmir 60 milljarðar af 311 milljarða kr. fjárfestingu koma af samgönguáætlun á 20 ára fresti. Íslenska ríkið mun líka fjármagna þetta með ábata af sölu byggingarréttar á Keldnalandi og annarri fjármögnun ríkisins, svo sem beinum framlögum og með flýti- og umferðargjöldum, sem ekki hefur verið tekin ákvörðun um.
Varðandi fulla fjármögnun þá kemur fram í tillögu um samgönguáætlun 2023 að ríkið sé að hugsa um að fara í innviðafélag. Við erum komin miklu lengra en það. Við erum að vinna að frumvarpi um innviðafélag. (Forseti hringir.) Varðandi fjármögnun þess félags verður árlegt eiginfjárframlag. Það mun sennilega koma í fjárauka núna í vor, það næst örugglega, framlag þar. (Forseti hringir.) Það verður lánsfjármögnun, þetta félag getur tekið lán og veðsett eignir sem það fær, Vaðlaheiðargöng, Hvalfjarðargöng o.s.frv. Svo er gjaldtaka af samgöngumannvirkjum. Það er það sem við segjum að sé full fjármögnun. (Forseti hringir.) Það eru fyrirheit um fulla fjármögnun, alveg eins og í fjármálaáætlun þar sem eru fyrirheit um fjármögnun ríkisins fimm ár fram í tímann. (Gripið fram í.)Já, þetta eru allt áætlanir, fjárlög næsta árs eru áætlun, fjármálaáætlun til fimm ára er áætlun.
(Forseti (BHar): Forseti ítrekar enn og aftur mikilvægi þess að halda hér tímamörk.)