157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:00]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er kannski aðeins á sama stað og hér áðan. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra í ljósi þess að hann talar ítrekað um að þetta sé fullfjármögnuð áætlun og mér finnst þetta allt eiginlega bara verða óljósara og óljósara í hvert skipti sem hæstv. ráðherra kemur hérna upp: Lítur hann svo á að flýtigjöld séu ekki skattahækkanir? Lítur hann svo á að flýtigjald sé ekki gjald eða skattahækkun? Það er fyrsta spurningin. Næsta spurning er í raun og veru: Hversu hátt hlutfall af auknum kostnaði verður innheimt með skattahækkun og aukinni gjaldtöku? Hversu hátt hlutfall verður vegna endurskoðunar og aðhalds á útgjaldahlið ríkissjóðs eða vegna eigna sem verða settar inn í þetta nýja félag? Það hlýtur að vera að hæstv. ráðherra viti hversu mikið verður innheimt gegnum nýja skatta á almenning og hversu mikið kemur til vegna áætlunar um aðhald á ríkissjóði. Eru þetta allt ný útgjöld eða ætlið þið að sýna aðhald? Hver eru hlutföllin?

Af því að ég hef enn tíma langar mig líka einfaldlega að spyrja hæstv. ráðherra: Hvar verður byrjað að bora á kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar?