157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:01]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Varðandi flýtigjöld er ekki tímabært að tala um þau í dag. Af hverju? Það eru engin áform um þau. Varðandi nýja skatta sem eru bundnir við mannvirki eins og Sundabraut, Ölfusárbrú og Vaðlaheiðargöng: Er það nýr skattur ef þú borgar fyrir að keyra Vaðlaheiðargöng? Notandinn er þá að borga fyrir að keyra Vaðlaheiðargöng. Hann gæti keyrt um Víkurskarð o.s.frv. Það eru gjöld þar. Það er gert ráð fyrir gjöldum um Ölfusárbrú. Þú getur keyrt í gegnum miðbæ Selfoss, eins og gert er í dag. Framkvæmdin um Sundabraut er algerlega fjármögnuð af gjaldtöku og veggjöldum. Einstaklingar geta farið aðra leið líka. Hvenær verður byrjað að bora? Það verður byrjað að bora árið 2027 og ég bið hv. þingmann velkomna að vera viðstadda þegar við sprengjum fyrir Fljótagöngum, sem verður vonandi seinni hluta árs 2027. Það er markmið okkar. Varðandi innviðafélagið þá verða lagðar eignir inn í það, t.d. Ölfusárbrú sem er tekjuberandi og Hvalfjarðargöng sem ekki eru tekjur af í dag. Það er ekkert sem segir að til standi að taka upp veggjald í þeim göngum. Þú getur veðsett húsið þitt án þess að hafa tekjur af því, þannig að það kemur inn í efnahagsreikning félagsins og það getur þá tekið lán út á eignir sínar. Eins og ég sagði áðan getur félagið notað eiginfjárframlag til að borga af lánum, t.d. lánsfjármögnun með ríkisábyrgð. Það fjármagnar sig einnig með gjaldtöku, t.d. við Ölfusárbrú, Sundabraut og fleiri staði þar sem mannvirki sem verða í eigu félagsins eru að fara í framkvæmd. Svo má gefa út skuldabréf til lífeyrissjóða o.s.frv. Ég get ekki séð að við séum núna að tala um veggjöld líkt og í öðrum ríkjum eins og Noregi. Það hafa verið veggjöld í Noregi í 90 ár. Við erum líka með veggjöld í dag. (Forseti hringir.) Við vorum með veggjöld af Hvalfjarðargöngum og það er ekkert óeðlilegt við það að við förum í framkvæmdir eins og Sundabraut með veggjöldum.