157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:05]
Horfa

innviðaráðherra (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Varðandi gjaldtöku á mannvirkjum þá gat einstaklingur sem ekki vildi borga í Hvalfjarðargöng á sínum tíma keyrt Hvalfjörðinn eins og í gamla daga. Hann gat sleppt því að keyra í gegnum göngin, borgað 500 kallinn eða þúsundkallinn. Ef hann var á móti gjaldtökunni þá keyrði hann Hvalfjörðinn. Sama er varðandi Vaðlaheiðargöng. Þú keyrir Víkurskarðið í staðinn og mótmælir því að borga. Við getum valið um það. Það stendur í lögum um samvinnuverkefni í samgöngum að það verði að vera önnur hjáleið. Í öðrum löndum er þetta ekki svo. Þú ert bara rukkaður fyrir að aka um ákveðna vegi. Ég sé ekkert að því að nýframkvæmdir á borð við Sundabraut, sem eru framkvæmdir upp á 100 milljarða, séu fjármagnaðar með þessum hætti. Spurningin er: Hvernig á að borga þetta? Á að láta notendur borga þetta eða taka þetta af skattpeningum? Það er tvennt sem kemur til greina en það eru engin áform um að fara að hefja gjaldtöku um mannvirki sem eru þegar til staðar, svo það liggi fyrir.

Varðandi skiptinguna á milli landsbyggðar og höfuðborgar skil ég ekki alveg spurninguna. Stóra vandamálið hér á Íslandi er það að 82% þjóðarinnar býr á Hvítár-Hvítársvæðinu (Forseti hringir.) og 8% á Eyjafjarðarsvæðinu, samtals 90%. Þegar við förum í samgönguframkvæmdir á þeim svæðum þar sem 10% íbúanna búa þá verður (Forseti hringir.) að koma til stuðningur ríkisins til að greiða fyrir þau samgöngumannvirki vegna þess að umferðin er einfaldlega ekki nægilega mikil (Forseti hringir.) til að þau séu borguð af veggjöldum.