samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Hann spyr hvort mér finnist þetta óeðlilegt. Mér finnst þetta ekki óeðlilegt af því að við erum líka að tala um fjármálaáætlun og þar er sannarlega búið að finna fjármagn fyrir þann hluta samgönguáætlunar sem snýr að þeim tíma sem fjármálaáætlunin nær til, svo það er sannarlega fullfjármagnað. Varðandi svo stórframkvæmdir þá er, eins og ég segi aftur, búið að komast að samkomulagi, það var mikil vinna lögð í þetta milli forsætisráðuneytisins, fjármálaráðuneytisins og innviðaráðuneytisins um útfærslu á þessu. Útfærslan liggur fyrir. Hún verður lögð fram hér til meðferðar Alþingis og samkvæmt þessari útfærslu er búið að sjá fyrir leið til að fjármagna það sem hér er um talað og í trausti þess tölum við um að þetta sé fullfjármagnað. Ég ætla bara að standa við það þar til annað kemur í ljós.