samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða samgönguáætlun og það er svo sem af nógu að taka. Til að fara yfir áætlunina hafa þingmenn tíu mínútur í fyrstu umferð. Ég ætla svo sem ekki að hafa mörg orð um það enda af nógu öðru að taka en eins og komið hefur fram hér er það samt alveg ótrúlegt að við skulum vera að ræða samgönguáætlun sem er ekki búin að fara inn í samráðsgátt. Hún er í raun ekki búin að fá fyrstu hrinu athugasemda frá hagsmunaaðilum, sveitarfélögum og öðrum. Þetta eru eiginlega alveg ótrúleg vinnubrögð en kannski líka lýsandi fyrir öll önnur vinnubrögð af hendi hæstv. ríkisstjórnar. Hér eru málin að koma inn án mikils samráðs og það á helst að reyna að hafa sem minnst samráð um öll mál. Hér stöndum við samt og ræðum samgönguáætlun. Þar sem ég sit í umhverfis- og samgöngunefnd langar mig að tæpa hér á nokkrum málum sem snúa sérstaklega að norður- og austursvæðinu. Mér finnst það sorglegt, virðulegur forseti, að sjá að með þessari áætlun sem verið er að leggja fram — og auðvitað á hún eftir að koma til umræðu og það á eftir að gera við hana margar athugasemdir, geri ég ráð fyrir — en það er sorglegt að sjá að hæstv. ráðherra sé hér að snúa við kostnaðarhlutdeild sveitarfélaga og ríkis í nýframkvæmdum á höfnum þannig að nú taka sveitarfélögin á sig 60% í stað 40%. Það eru akkúrat hafnirnar sem þurfa á þessum peningum að halda sem eru að fara að taka á sig aukið kostnaðarvægi. Ég vil t.d. benda á að nú er Múlaþing að fara í Strandabakka á Seyðisfirði og í staðinn fyrir að borga 40% mun sveitarfélagið borga 60%. Það er líka verið að lækka Hafnabótasjóð og það er mjög sérstakt í ljósi þess að við erum að horfa til þess að auka verðmætasköpun í landinu, styrkja hafnirnar sem eru önnur af tveimur gáttum inn og út til landsins. Hafnirnar skipta gríðarlega miklu máli hvað varðar verðmætasköpun, uppbygging þeirra og viðhald. Hafnirnar eru lífsnauðsynlegar fyrir íslenskt efnahagslíf.
Virðulegur forseti. Í þessari áætlun er líka einhvern veginn öllu hlaðið einhvers staðar aftast. Þar eru eiginlega allir stóru peningarnir. Ég vil nefna að á norðursvæðinu eru ætlaðir 5,7 milljarðar á þessu kjörtímabili. Á kjörtímabilinu 2031–2035 eru það 12 milljarðar og 2036–2040 eru 11 milljarðar ætlaðir í vegasamgöngur. Á austursvæðinu eru 6,2 milljarðar að fara á kjörtímabilinu, en svo 2031–2035 og 2036–2040 eru þetta 18 og 16 milljarðar, þ.e. eftir 10–15 ár. Samtals eru þetta um 43 milljarðar á kjörtímabilinu fyrir landið en 2031–2035 eru það 81 milljarður og svo 80 milljarðar 2036–2040. Hvað varðar nýframkvæmdir eru þetta 46 milljarðar á kjörtímabilinu. Hvað er það svo 2031–2035 og reyndar sama talan 2036–2040? Jú, 105 milljarðar á hvort tímabil, 210 milljarðar sem koma einhvers staðar aftast. Í rauninni snýst þetta allt orðið um það að hæstv. ráðherra setji bara einhverjar risastórar tölur aftast á tímabilið til að geta komið á blaðamannafundi og sagt: Ég er að leggja fram samgönguáætlun upp á 900–1.000 milljarða, fullfjármagnaða en reyndar bara á fyrstu árunum. Skiptar skoðanir eru á því hvort hún sé fullfjármögnuð. Maður veltir því fyrir sér: Hvaðan koma t.d. þessir 105 milljarðar? Hvernig koma þeir til? Er þetta bara eitthvað sem er gripið úr lausu lofti í ráðuneytinu eða er þetta eitthvað sem er búið að ákveða hvernig verður?
Það er ekki allt slæmt í þessari áætlun, alls ekki, og það er alltaf gott að leggja fram áætlun þar sem á að fara í framkvæmdir. En ég verð að segja, virðulegur forseti, að forgangsröðunin í þessari áætlun finnst mér ekki mjög góð. Ég ætla t.d. að koma hér inn á mjög mikilvæg atriði sem snúa að Norðausturkjördæmi. Því er svo farið að 12 af 15 brúm á Íslandi sem eru með þungatakmarkanir eru í Norðausturkjördæmi. Þessar misstóru og mikilvægu brýr í Norðausturkjördæmi eru orðnar áratugagamlar, sumar hverjar næstum því farnar að slá í að verða aldargamlar. Þegar verið er að tala um verðmætasköpun og umferðaröryggi hljóta menn að horfa til þessara þátta. Þess vegna er t.d. sorglegt að sjá að Jökulsá á Fjöllum, sem er komin með miklar þungatakmarkanir, er áætluð á öðru og þriðja tímabili. Það er sem sagt frá 2031–2040. Þessi brú er svo löngu úr sér gengin og með miklum þungatakmörkunum sem hafa orðið til þess, ásamt viðlíka þungatakmörkunum sunnan við Austfirði, að það hefur jafnvel þurft að flytja þunga hluti sjóleiðis frá Þorlákshöfn til Reyðarfjarðar af því að það er ekki hægt að flytja þá landleiðina. Ég hefði velt þessu fyrir mér þegar menn tala um verðmætasköpun og uppbyggingu samgönguinnviða. Ég hefði haldið að menn hefðu horft til flöskuhálsa eins og brúa með þungatakmörkunum og sagt: Heyrðu, þetta verðum við að setja í forgang. Það er jákvætt að sjá að brúin um Skjálfanda í Kinninni er komin á áætlun 2026–2029. Ég verð hins vegar að segja að brúin yfir Jökulsá á Fjöllum og brúin yfir Fosshól við Skjálfanda, sem eru núna áætlaðar 2030–2031, eru stórhættulegar brýr. Brúin við Fosshól við Skjálfanda er með þeim hætti að það er alveg gríðarlega mikil umferð í kringum Goðafoss og það svæði og þetta er orðin stórhættuleg brú. Aðkoma að þeirri brú er stórhættuleg. Þú keyrir beint niður úr brekkunni að brúnni og þessi brú er ekki á dagskrá fyrr en eftir fimm, sex ár. Þá á að hefjast handa við þessa brú.
Virðulegur forseti. Mér finnst þetta röng nálgun. Það sama á við um austursvæðið og nýja Lagarfljótsbrú, þar sem fyrir er gömul timburbrú sem fyrir ekki svo mörgum árum kviknaði í — og heimamenn hafa oft séð eftir því að hafa slökkt í stað þess að láta brúna brenna, þeir hafa nagað sig í handarbökin eftir það — hún er ekki á áætlun fyrr en 2036–2040, þ.e. ný Lagarfljótsbrú. Þessi gamla timburbrú sem er yfir Lagarfljótið er orðin einn af þessum flöskuhálsum líka. Síðan er verið að státa sig af því að hér eigi að koma upp hringtorgi og Austfirðingar eiga að vera ánægðir með það að koma eigi upp hringtorgi á Egilsstöðum fyrir 800 milljónir. Ég bara spyr: Hvers lags hringtorg er það sem kostar 800 milljónir? Það er ekkert smáhringtorg. (IngD: Neðanjarðar. )Eins og hv. þm. Ingibjörg Davíðsdóttir veltir fyrir sér: Er þetta neðanjarðarhringtorg á Egilsstöðum, a.m.k. fyrir þennan pening? Ég bíð spenntur eftir að sjá teikningu af þessu hringtorgi fyrir 800 milljónir. Það sem snýr líka að austursvæðinu og er mjög alvarlegt er að Suðurfjarðavegurinn, sem talinn hefur verið einn hættulegasti vegkafli landsins, skuli ekki vera áætlaður til framkvæmda fyrr en á öðru og þriðja tímabili.
Af því að nú er tíminn liðinn, virðulegur forseti, þá get ég ekki annað en komið hér inn á jarðgöngin og forgangsröðun í jarðgangamálum. Það er algerlega augljóst. Það að spila núna út Fjarðagöngum er ekkert annað en að slá ryki í augu kjósenda. Það er verið að taka kost sem er ekki búið að rannsaka bara til þess eins — og þetta er pólitískur leikur — að setja Austfirðinga aftast á listann með göng sem ekki er búið að rannsaka og taka göng í kjördæmi ráðherrans fram fyrir. Það er allt í lagi að menn játi það að þeir séu í ákveðnu kjördæmapoti við forgangsröðun fyrir sitt kjördæmi og menn skulu bara vera menn til þess í staðinn fyrir að búa til einhvern leikþátt um það að vera að koma með einhverjar nýjar lausnir í jarðgangamálum.