157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:51]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir ágætisframsögu. Það er margt þarna sem við þurfum að skoða á næstu vikum og mánuðum en mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann út í það sem snýr að rekstri hafna og framkvæmdum sem eru greiddar úr Hafnabótasjóði. Nú er rekstur hafna er samkeppnisrekstur og hafnalögin eru skýr um að það sé óheimilt að styrkja með framlagi úr ríkissjóði hafnir sem eru orðnar sjálfbærar. Ég velti fyrir mér hvort hv. þingmaður er þá í raun fylgjandi því að hafnir sem eru fjárhagslega sjálfbærar séu niðurgreiddar með almannafé eða hvort hann sé sammála að það þurfi einhvers staðar að setja þessi mörk.

Mig langar einnig að spyrja hv. þingmann hvort hann sé þá á móti þessu hringtorgi sem er fyrirhugað á Egilsstöðum. Svo finnst mér gaman að heyra talað um brúna á Jökulsá á Fjöllum sem er loksins komin á samgönguáætlun en það þurfti að losna við fyrri ríkisstjórn svo það gæti gerst [Hlátur í þingsal.] því að þetta var ekki á samgönguáætlun 2023.