samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur kærlega fyrir hennar fyrra andsvar. Þar sem ég þekki nú vel til, sat í 12 ár í bæjarstjórn Fjarðabyggðar, þá er það þannig að síðast þegar hafnarsjóður Fjarðabyggðar fékk t.d. úr þessum Hafnabótasjóði og styrk frá ríkinu í uppbyggingu var það fyrir risastóru verkefni sem var álvershöfnin. Eftir það hefur hafnarsjóður Fjarðabyggðar sett 800 milljónir í höfnina í Neskaupstað, líklega annað eins í Mjóeyrarhöfn á Reyðarfirði, settum held ég 400, 500, 600 milljónir í höfnina á Fáskrúðsfirði, farið í miklar endurbætur á höfninni á Eskifirði o.s.frv. Þetta hefur hafnarsjóður Fjarðabyggðar gert fyrir eigin tekjur og eigin pening. Hafnarsjóðurinn er gríðarlega sterkur og hefur náð að framkvæma fyrir eigin pening. Það er ekki þannig að þessar hafnir séu að fá pening frá ríkinu. En mér finnst allt í lagi — kannski er það eitthvert matsatriði milli þingmanna hvenær menn eru orðnir sjálfbærir eða aflögufærir um að fara í eigin framkvæmdir. Ég held að það hljóti alltaf að liggja fyrir að þó að höfn sé með ágætistekjur, og þá er ég ekki að tala um stærstu hafnirnar, til að sinna viðhaldi á núverandi hafnarmannvirkjum þá sé það allt annað mál ef það þarf að fara í stærri hafnarframkvæmdir sem kosta kannski milljarða. Þá ertu bara kominn á allt annan stað og þá munar um þetta framlag frá ríkinu. En auðvitað er það þannig að við viljum hafa sem mesta umsetningu og mest umsvif á sem flestum höfnum þannig að þær séu sjálfbærar. Þá getum við líka hjálpað til við að styrkja og byggja upp fleiri hafnir í landinu.