157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:54]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið en hann skuldar mér enn þá svar um hringtorgið.(Gripið fram í.) Mig langar að nýta tækifærið og halda því til haga að þessi kostnaður sem er rætt um í tengslum við hringtorgið snýr ekki aðeins að hringtorginu sjálfu heldur er líka um að ræða tilfærslu á vegum í samræmi við miðbæjarskipulag Múlaþings, þannig að það er inni í þessum kostnaði líka. En það væri gott að heyra hvort hann sé mótfallinn þessari breytingu. Varðandi hafnirnar þá munum við sjálfsagt rýna þetta vel á næstu vikum. En það er ekki verið að tala um að framlagið verði tekið af heldur verið að hreyfa eitthvað til í þessum prósentum sem snúa að framkvæmdum og mismunandi þáttum Hafnabótasjóðs sem kemur þar að. Ég held ég láti þetta duga í bili.