157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[17:56]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur fyrir hennar seinna andsvar. Ég ætla að byrja aðeins á höfnunum af því að það er verið að tala um að styrkja ekki stærri hafnirnar eða það er komin einhver ný skilgreining á því hver á að geta borgað hvað. Þá fer maður einmitt að velta fyrir sér að það sé samt verið að breyta kostnaðarhlutfallinu. Það er ákveðin mótsögn í því ef þú ætlar að leggja áherslu á að styrkja minni og veikari hafnir að láta þær svo borga meira. Ríkið er að fara úr 60% kostnaðarþátttöku í 40% þannig að minni og veikari hafnir þurfa þá að leggja meiri pening af mörkum sem þær hafa kannski ekki fjárhagslegt svigrúm til. En þetta, eins og margt annað, eigum við eftir að ræða í nefndinni og ég tel að þessi samgönguáætlun eigi eftir að taka miklum breytingum í meðferð nefndarinnar, vonandi, á komandi vikum og mánuðum.

En blessaða hringtorgið, við skulum aðeins ræða það. Það kemur fram í samgönguáætlun að þetta hringtorg kosti 800 milljónir. Það hlýtur að vekja upp spurningar hjá þingmönnum hvers lags hringtorg það er. Jú, ég geri mér grein fyrir því að það hljóta að vera einhverjar vegtengingar við þetta. Ég hefði haldið að það væri jafnvel hengibrú tengd við þetta hringtorg miðað við kostnaðinn á því. En það er líka eitt í þessu sem kemur þarna inn; allar þessar vegabreytingar sem eru í kringum þetta hringtorg miðuðust út frá breytingum á þjóðveginum og legu þjóðvegarins eftir að Fjarðarheiðargöng myndu koma en nú eru þau ekki koma. Samt er 800 millj. kr. hringtorg sett inn í púllíuna. Það er eitt af því sem manni finnst svolítið sérstakt í ljósi breyttra áherslna ríkisstjórnarinnar í gangamálum.