157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:16]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Tómasi Þór Þórðarsyni fyrir að koma í andsvar og tala um það að ræsa vélarnar. Við erum bara stolt af því að vera að ræsa vélarnar og við ættum öll að fagna því, held ég. Varðandi innviðaskuldina þá sótti ég ráðstefnu sem Samtök iðnaðarins héldu í fyrra þar sem þau voru búin að meta innviðaskuldina svona heilt yfir. Þá nam hún einhverjum 680 milljörðum að þeirra mati og hafði safnast upp jafnt og þétt. Þetta eru ekki bara vegirnir heldur líka hafnirnar, flugvellirnir, raforkunetið og alls konar hlutir sem við höfum því miður ekki náð að laga og halda við. Almennt er viðhaldið oft ótrúlega leiðinlegur kostnaðarliður en hann er svo nauðsynlegur vegna þess að ef maður gerir ekkert í þessu þá safnast þetta upp og verður miklu dýrara þegar á hólminn er komið. Hvort þetta dugar til eða ekki, þá er framlagið náttúrlega að fara úr 12–13 milljörðum á ári, bara hvað vegina varðar, svo er auðvitað allt hitt til hliðar, upp í 17–20 milljarða. Einhvers staðar þurfum við að byrja. Þetta er um 40% hækkun, að mér skilst. Ég fann það bara strax í sumar, það var farið í viðhald á vegum í sumar á mínum heimaslóðum og fólk talaði strax um það og fann fyrir breytingunum. Þannig að jú, við getum alveg karpað um það hvað sé nóg. Ég væri alveg til í að geta bara með einu pennastriki strokað þessa innviðaskuld út, en þetta eru raunheimar. Við þurfum að byrja einhvers staðar. Við þurfum að ræsa vélarnar og við þurfum að fara af stað og koma okkur áfram vegna þess að fleiri ár af kyrrstöðu eru bara ekki í boði.