157. löggjafarþing — 56. fundur,  19. jan. 2026.

samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.

322. mál
[18:20]
Horfa

María Rut Kristinsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Tómasi Þór Þórðarsyni fyrir síðara andsvar. Við getum auðvitað verið hér í einhverju orðaskaki um hugtakanotkun, hvort við eigum að vera í frumstigi, miðstigi eða efsta stigi. Ég sem manneskja deili alveg því að auðvitað eigum við að hafa vaðið fyrir neðan okkur og við eigum að vera í raunheimum með lappirnar á jörðinni og taka ákvarðanir út frá því. Það sem kemur fram hér er að þessi áætlun er samkvæmt fjármálaáætlun, það er gert ráð fyrir kostnaðinum. Þar af leiðandi er þessi ríkisstjórn búin að setja inn í sitt bókhald hvernig þessir hlutir verða framkvæmdir. Það er síðan okkar á hverju einasta ári að skoða hvort þetta sé ekki að ganga eftir og það verður mikið aðhaldshlutverk hér í þinginu að passa upp á það vegna þess að ég ætla að leyfa mér að trúa því að hér séum við öll í sama liði.