samgönguáætlun fyrir árin 2026--2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026--2030.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jens Garðari Helgasyni fyrir síðara andsvar. Varðandi hafnirnar og hvernig þær eru fjármagnaðar þá held ég að við þurfum bara að skoða þetta mjög heildstætt í nefndinni. Fyrst og fremst þurfum við að tryggja að hafnirnar okkar séu öflugar og að við séum ekki í einhverri innviðaskuld þar líka vegna þess að þetta eru gríðarlega mikilvæg mannvirki allt landið um kring, ekki síst núna á þessum tímum þegar það er ólgusjór í alþjóðakerfinu og annað og hafnirnar eru auðvitað tengipunktur okkar við umheiminn líka. Ég ætla ekki að svara því hér og nú hvað mér finnst um þetta mál, hv. þingmaður, en ég get samt sagt að ég fagna því að við ætlum að fara að taka dýpri umræðu um hafnir almennt vegna þess að samgönguáætlun hverfist oft svolítið um vegaframkvæmdirnar. (Forseti hringir.) En við megum ekki gleyma höfnunum og flugvöllunum og þvíumlíku og fjarskiptunum.